Útivistarsvið

Námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Íþrótta og útivistarbraut, útivistarlína er 200 einingar og meðalnámstími

Íþróttir og útivist, útivistarsvið


Námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Íþrótta og útivistarbraut, útivistarlína er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir. Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla.

Á íþrótta og útivistarbraut, útivistarsviði er áhersla á grunngreinar og sérgreinar í útivist, íþróttum og lýðheilsu, s.s. fjallamennska, íþróttagreinar, íþróttafræði og næringarfræði.
Brautinni lýkur með stúdentsprófi og er nám á henni heppilegur undirbúningur fyrir frekara nám m.a. í  háskólanám á sviði kennslu, íþróttafræða og útivistar hér á landi sem erlendis.


Hæfnimarkmið íþrótta og útivistarbrautar eru:
Að nemandi

  • geti séð um viðburð sem tengist íþrótta- og útivistarstarfi, s.s. kennslu, þjálfun, gönguferð eða móti sem tekur til undirbúnings, skipulags, framkvæmdar og mats ásamt því að geta metið hlutlægt eigin frammistöðu við verkið og nýtt niðurstöðuna til að ná betri árangri.
  • geti tekið þátt í upplýstri umræðu um málefni er tengjast hreyfingu, heilsueflingu, þjálfun og útivist
  • geti tekið ábyrgð á þjálfun og leiðbeint öðrum
  • hafi öðlast fræðilega og verklega undirstöðuþekkingu
  • geti greint frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
  • geti tekið þátt í rökræðum um efni sem tengjast hreyfingu ,heilsu, þjálfun og útivist
  • geti stundað íþróttir og útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir, skíðaferðir, hjólreiðar, brimbrettareið og fl.
  • þekki hvernig má nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
  • geti fléttað hreyfingu inn í daglegt líf og starf.
  • sé meðvitaður um umhverfi sitt, hafi lært að njóta þess, virða og nýta á skynsamlegan hátt með sjálfbærni í huga
  • séu vel undirbúnir fyrir frekara nám einkum á sviði kennslu íþróttafræða og útivistar á háskólastigi

Íþrótta- og útivistarbraut

Útivistarsvið   1. þrep 2. þrep 3. þrep  
Kjarni (K) Skst             Ein
Íslenska ÍSL     2A05 2B05 3A05 3B05  
Danska DAN     2A05 2B05      
Enska ENS     2A05 2B05 3?05    
Inngangur að félagsvísindum IFÉ 1A05            
Inngangur að listum ILI 1A05            
Inngangur að náttúruvísindum INÁ 1A05            
Lýðheilsa LÝÐ 1A03 1B02 2A02 2B03      
Stærðfræði STÆ     2A05 2T05      
Tröllaskagi TRÖ 1A05            
Upplýsingatækni dreifnáms UTD     2A05        
Fjöldi eininga   23 2 27 23 10 5 90
Brautarkjarni (BK)                
Íþróttafræði ÍÞF     2A05        
Næringafræði NÆR     2A05        
Fjöldi eininga     10   10
Sérhæfing (S)                
Björgun BJÖ     2A05        
1. Hjálp HJÁ     2A05        
Fjallamennska FJA     2A05        
Útivist ÚTI     2A05 2B05 3A05    
                 
Fjöldi eininga     25 5 30
Bundið val (BV)                
Líffæra- og lífeðlisfræði, íþróttasálfræði, barna- og unglingaþjálfun, íþróttaþjálfun, íþróttafræði, íþróttagreinar, íþróttasögu, fjallamennsku eða björgunarsveitarnám eða aðrar greinar sem skólinn samþykkir   5 10 15 30
Frjálst val (FV)                
          40
               Alls: 200
                 
Íþróttir og útivist, útivistarsvið er byggt upp af kjarna, brautarkjarna, sérhæfingu, bundnu vali og frjálsu vali. Kjarni, brautakjarni, sérhæfing og bundið val eru samtals 160 einingar og eru skylduáfangar fyrir nemendur brautarinnar. Nemendur þurfa einnig að ljúka 40 einingum í frjálsu vali og geta ráðið úr hvaða námsgreinum þessar einingar koma. Nemendur þurfa að gæta að hlutfalli milli þrepa í valinu. Athugið að skólinn hefur takmarkaða möguleika á valáföngum á hverri önn vegna fámennis og þess vegna er nauðsynlegt að taka valáfangana jafnt og þétt í náminu.
 
 
 
                 
Hlutfall eininga á þrepi K BK S BV FV Alls    
1. þrep 33-67 25 0 0 5   30    
2. þrep 67-100 50 15 20 10   95    
3. þrep 33-67 15 0 5 15   35    
Alls 90 15 25 30 40 200    
                 
Nemendur eru hvattir til þess að skoða vel inngönguskilyrði í það nám sem þeir óska að stunda að loknu stúdensprófi til að geta nýtt valið sitt til að uppfylla þau.
                 
Þegar talað er um einingar er átt við nýja skilgreiningu á einingum samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla (nr. 92/2008).      
                 
Seinast breytt 17. febrúar 2012                

 

Menntaskólinn á Tröllaskaga
Ægisgötu 13
625 Ólafsfirði

Sími 460 4240
Netfang: mtr@mtr.is
kt. 690310-0820

Skrifstofa skólans er opin alla
virka daga frá 8:00 til 16:00

Hafðu samband! 

Svæði

Frumkvæði    Sköpun    Áræði