Íþróttasvið

Námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Íþrótta og útivistarbraut, íþróttalína er 200 einingar og meðalnámstími er

Íþróttir og útivist, íþróttasvið

Námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Íþrótta og útivistarbraut, íþróttalína er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir. Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla.

Á íþrótta og útivistarbraut, íþróttasviði er áhersla á grunngreinar og sérgreinar í íþróttum og lýðheilsu, s.s. íþróttagreinar, íþróttafræði og næringarfræði.
Brautinni lýkur með stúdentsprófi og er nám á henni heppilegur undirbúningur fyrir frekara nám m.a. í  háskólanám á sviði kennslu, íþróttafræða og útivistar hér á landi sem erlendis.

Hæfnimarkmið íþrótta og útivistarbrautar eru:
Að nemandi

  • geti séð um viðburð sem tengist íþrótta- og útivistarstarfi, s.s. kennslu, þjálfun, gönguferð eða móti sem tekur til undirbúnings, skipulags, framkvæmdar og mats ásamt því að geta metið hlutlægt eigin frammistöðu við verkið og nýtt niðurstöðuna til að ná betri árangri.
  • geti tekið þátt í upplýstri umræðu um málefni er tengjast hreyfingu, heilsueflingu, þjálfun og útivist
  • geti tekið ábyrgð á þjálfun og leiðbeint öðrum
  • hafi öðlast fræðilega og verklega undirstöðuþekkingu
  • geti greint frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
  • geti tekið þátt í rökræðum um efni sem tengjast hreyfingu ,heilsu, þjálfun og útivist
  • geti stundað íþróttir og útivist þar sem krafist er sérstaks útbúnaðar, td. fyrir gönguferðir, skíðaferðir, hjólreiðar, brimbrettareið og fl.
  • þekki hvernig má nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
  • geti fléttað hreyfingu inn í daglegt líf og starf.
  • sé meðvitaður um umhverfi sitt, hafi lært að njóta þess, virða og nýta á skynsamlegan hátt með sjálfbærni í huga
  • séu vel undirbúnir fyrir frekara nám einkum á sviði kennslu íþróttafræða og útivistar á háskólastigi

 

Íþrótta- og útivistarbraut








Íþróttasvið
1. þrep 2. þrep 3. þrep
Kjarni (K) Skst






Ein
Íslenska ÍSL

2A05 2B05 3A05 3B05

Danska DAN

2A05 2B05



Enska ENS

2A05 2B05 3?05


Inngangur að félagsvísindum IFÉ 1A05






Inngangur að listum ILI 1A05






Inngangur að náttúruvísindum INÁ 1A05






Lýðheilsa LÝÐ 1A03 1B02 2A02 2B03



Stærðfræði STÆ

2A05 2T05



Tröllaskagi TRÖ 1A05






Upplýsingatækni dreifnáms UTD

2A05




Fjöldi eininga
23 2 27 23 10 5
90
Brautarkjarni (BK)








Íþróttafræði ÍÞF

2A05




Næringafræði NÆR

2A05




Fjöldi eininga

10
10
Sérhæfing (S)








Barna- og unglingaþjálfun BUÞ

2A05
 


Íþróttafræði ÍÞF


2B05
 


Líffæra- og lífeðlisfræði LOL

2A05 2B05




Fjöldi eininga

20   20
Bundið val (BV)








Fjallamennska, björgun, útivist, íþróttafræði, barna- og unglinga- þjálfun, næringarfræði, íþróttaþjálfun, boltagreinar, líffæra og lífeðlisfræði og íþróttasaga eða aðrar greinar sem skólinn samþykkir
5 10 25 40
Frjálst val (FV)













40








Alls: 200










Íþróttir og útivist, íþróttasvið er byggt upp af kjarna, brautarkjarna, sérhæfingu, bundnu vali og frjálsu vali. Kjarni, brautakjarni, sérhæfing og bundið val eru samtals 160 einingar og eru skylduáfangar fyrir nemendur brautarinnar. Nemendur þurfa einnig að ljúka 40 einingum í frjálsu vali og geta ráðið úr hvaða námsgreinum þessar einingar koma. Nemendur þurfa að gæta að hlutfalli milli þrepa í valinu. Athugið að skólinn hefur takmarkaða möguleika á valáföngum á hverri önn vegna fámennis og þess vegna er nauðsynlegt að taka valáfangana jafnt og þétt í náminu.
 
 
 










Hlutfall eininga á þrepi K BK S BV FV Alls


1. þrep 33-67 25 0 0 5
30


2. þrep 67-100 50 10 20 10
90


3. þrep 33-67 15 0 0 25
40


Alls 90 10 20 40 40 200












Nemendur eru hvattir til þess að skoða vel inngönguskilyrði í það nám sem þeir óska að stunda að loknu stúdensprófi til að geta nýtt valið sitt til að uppfylla þau.










Þegar talað er um einingar er átt við nýja skilgreiningu á einingum samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla (nr. 92/2008).



                   
Seinast breytt 17. febrúar 2012                  

 

Menntaskólinn á Tröllaskaga
Ægisgötu 13
625 Ólafsfirði

Sími 460 4240
Netfang: mtr@mtr.is
kt. 690310-0820

Skrifstofa skólans er opin alla
virka daga frá 8:00 til 16:00

Hafðu samband! 

Svæði

Frumkvæði    Sköpun    Áræði