Menntaskólinn á Tröllaskaga býður upp á fjölbreytt nám til stúdentsprófs, framhaldsskólaprófs ásamt starfsnámi. 
| Stúdentsbrautir (200 einingar) námslok á 3. þrepi | 
| Skilgreindar sérhæfingar (brautir) | Valin sérhæfing (kjörnámsbraut) | 
| 
Félags- og hugvísindiÍþróttirÚtivistNáttúruvísindiMyndlistListljósmyndunSkapandi tónlistViðbótarnám til stúdentsprófs fyrir þá sem hafa lokið iðnnámi.
 | 
Nemandinn velur sérhæfingu í samráði við áfangastjóra. Hún getur verið á nánast hvaða sviði sem er innan þeirra faggreina sem skólinn kennir eða hefur samstarf um við aðra framhaldsskóla. | 
|
|
|
Á stúdentsprófi (200 einingar) þurfa áfangar að raðast á hæfniþrep á eftirfarandi hátt skv. námskrá framhaldsskóla: 
|  | Stúdentspróf við skólann eru 200 einingar og nemendur þurfa að gæta að hlutfalli milli þrepa á brautinni Hlutfall eininga á þrepi: 1. þrep 33-67 einingar 2. þrep 67-100 einingar 3. þrep 33-67 einingar   | 
Grunnmenntabraut (90 einingar, námslok á 2. þrepi) 
Kjarninn er 54 einingar og frjálsa valið 36 einingar. Nemendur geta nýtt sér sérhæfingar í námi til stúdentsprófs eða nýtt valið í annað í samráði við áfangastjóra. Nemandi getur útskrifast af brautinni og haldið áfram námi til stúdentsprófs við lok hennar.
Starfsbraut (sérdeildarnám, námslok á 1. þrepi) 
Námið er 4 ára nám og er námið sniðið að þörfum hvers einstaklings.
 
Uppfært 5. desember 2022.