Starfsnám á vinnustað - STVS1D05

Lýsandi heiti áfanga: Starfsnám á vinnustað
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: STVS1B05

Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn er verklegur og fer námið fram á hinum ýmsu vinnustöðum í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. Vinnan á starfsnámsstað er skipulögð í samráði við fulltrúa vinnustaðar. Starfsnámstímabilið stendur yfir alla önnina og er viðvera nemenda á starfsnámsstað einstaklingsbundin. Umsjónarmaður starfsbrautar hefur umsjón með starfsnáminu en stefnt er að því að nemendur vinni undir leiðsögn starfsmanns á vinnustað. Í áfanganum er lögð áhersla á stundvísi, vandvirkni, sjálfstæði, samviskusemi, heiðarleika og að nemendur þekki og fari eftir vinnureglum og helstu öryggisatriðum á vinnustað.

Lokamarkmið áfanga:

  • að nemandi geti átt góð samskipti við annað starfsfólk
  • að nemandi vinni eftir fyrirmælum
  • að nemandi geri sér grein fyrir þeim reglum sem gilda á vinnustað
  • að búa nemanda undir þátttöku í atvinnulífinu
  • að nemandinn skoði eigin möguleika á starfi á almennum vinnumarkaði


Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • hvað það er að vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi
  • því sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
  • hvernig nýta beri lærða færni með því að ræða hana við aðra nemendur og bera saman við annað sem honum finnst skipta máli, t.d. áhugamál.
  • hvernig hann miðlar þekkingu sinni með fjölbreyttum og skapandi hætti í samræðu við aðra nemendur með margskonar hætti.


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • geta tjáð sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt og vera verklega sjálfbjarga í daglegu lífi
  • geta beitt skapandi hugsun í öllu starfi , vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
  • hafa aflað sér þjálfunar í þeim aðferðum og verklagi sem nám á vinnustað hans krefst
  • geta greint á milli mismunandi aðferða og milli mismunandi þátta í skipulagi verkferla


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hafa skýra sjálfsmynd og gera sér grein fyrir hvernig hann getur hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt
  • geta átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
  • geta að hagnýtt sér þá hæfni sem hann hefur aflað sér hvort heldur sem er í frekara námi eða í daglegu lífi. Hann á að geta sýnt fram á almenna siðvitund sína og umburðarlyndi og á að hafa skilning á eigin getu.
  • geta miðlað þekkingu sinni og leikni á hagnýtan máta og sýnt þannig sköpunarmátt sinn, frumkvæði og hæfni til að tjá hugmyndir og skoðanir.
  • Meta eigið vinnuframlag


Námsmat:
90% Símat sem byggir á frammistöðu nemandans á starfsnámsstað og á vinnusvæði í skóla. Tekið er mið af eftirfarandi þáttum: samskiptum, frumkvæði, sjálfstæði, vinnusemi og vandvirkni. Matið gerir fulltrúi starfsnámsstaðar og/eða starfsnámskennari MTR.
10% Verkefni og/eða dagbók.

Birt með fyrirvara um breytingar