Lýsandi heiti áfanga: Stærðfræðigrunnur, talnaskilningur, neikvæðar tölur, tugabrot, metrakerfið, prósentur,
hnitakerfi, klukkan
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: STÆS1A05
Lýsing á efni áfangans:
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í talnameðferð og talnaskilningi og læri að beita
skipulögðum vinnubrögðum við úrlausn verkefna. Farið verður í neikvæðar tölur, tugabrot og almenn brot, helstu reikniaðgerðir,
notkun töflureiknis, lengdar og þyngdarmælingar og notkun metrakerfisins, hnitakerfi og hnit punkta. Lögð verður áhersla á verkelga kennslu þar
sem nemendur vinna með mælingar og skráningu.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- talnamengjum, talnameðferð, almennum brotum og tugabrotum.
- metrakerfinu og samhenginu milli mm, cm, m og km
- samhenginu milli kg, g, og mg
- hnitum punkta í tvívíðu hnitakerfi
- framsetningu gagna á myndrænu formi
- flatarmáli ferhyrnings, þríhyrnings og hrings
- rúmmáli kassalaga hluta
- meðaltali
- einföldum prósentu reikningi
- stórum tölum af stærðargráðunni hundrað þúsund og milljón
- tíma, tímabili, og klukku
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita helstu aðgerðum á heilar tölur og beita samlagningu, deilingu og margfeldi á neikvæðar og jákvæðar tölur
- breyta milli tugabrota og almennra brota og deilanleika með lágum tölum.
- setja fram svör með viðeigandi nákvæmni
- finna hnit punkta í tvívíðu hnitakerfi og merkja inn punta með ákveðin (x,y) hnit
- mæla fjarlægðir með málbandi og reglustiku og skrá niðurstöður í km, m, cm og mm
- mæla rúmmál kassalaga hluta með málbandi og skrá niðurstöður
- ská endurteknar mælingar skipulega niður á blað og í töflureikni
- mæla þyngd hluta og skrá niðurstöður í kílógrömmum, grömmum og milligrömmum
- leggja saman og draga frá verð á hlutum og finna út heildarkostnað og afgang
- finna hversu mörg prósent hluti er af heild
- nota klukku og leysa dæmi eins og að finna út hversu langur tími líður frá klukkan 14:10 til 15:20
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á
viðeigandi hátt, sem er metið með umræðum í tímum og verkefnum
- leysa stærðfræðileg verkefni sem er metið með heimaverkefnum og virkni í tímum
- takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga, sem er metið með virkni í tímum, umræðum og
heimaverkefnum
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar