Lýsandi heiti áfanga: Stærðfræðigreining, heildun, deildajöfnur, runur og raðir
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: A.m.k. 10 einingar á 2. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Í áfanganum er farið í heildun og deildun og samspil þessara reikniaðgerða. Megin áhersla er lögð á heildun og tengsl heildunnar við
flatarmál. Farið verður í hagnýtingu heildareiknings og lögð áhersla á að nemendur kunni að nota hugbúnað eins og Geogebra og
Wolphram Alpha til að finna ákveðin og óákveðin heildi. Í áfanganum verður farið í fyrsta stigs deildajöfnur og notkun deildajafna
til að útskýra náttúruleg fyrirbæri. Farið verður í jafnmuna- og jafnhlutfalla runur og raðir, hagnýtingu þessara
reikniaðferða og tengingu við fjármál og náttúruvísindi. Lögð verður áhersla á að nemendur kunni að nota
töflureikna við úrlausn verkefna.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- tengsl deildunnar og heildunnar
- helstu aðferðum við að leysa ákveðin og óákveðin heildi
- fyrstastigs deildajöfnum
- runum, röðum og þrepasönnunum
- hagnýtingu framangreindrar stærðfræði á öðrum sviðum, s.s. í hagfræði, náttúruvísindum, umhverfismálum,
tæknifræði o.s.frv.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita hlutheildun, innsetningu og brotaliðun við lausn heilda
- meðhöndla punkta, línur og fleti og leysa verkefni í þrívíðri rúmfræði
- setja upp og leysa fyrsta stigs deildajöfnur
- nota þrepasannanir til að sanna reglur tengdar runum og röðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á
viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta,
unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar