Stærðfræði - STÆ1U03

Lýsandi heiti áfanga: Stærðfræðigrunnur, forgangsröð aðgerða, algebra, hnitakerfi
Framhaldsskólaeiningar: 3
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans:
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í talnameðferð og undirstöðuatriðum stærðfræðinnar og læri að beita skipulögðum vinnubrögðum við úrlausn verkefna.  Áfanginn er fyrir þá sem telja sig þurfa að skerpa á grunnþáttum stærðfræðinnar eða fá aukið sjálfstraust í þessu fagi til að vera betur í stakk búin fyrir seinni stærðfræði áfanga.  Farið verður í tölur, mengi, forgangsröð aðgerða, 1. og 2. stigs jöfnur og grunnþætti algebru og hnitakerfisins.

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • talnamengjum, talnameðferð, almennum brotum og tugabrotum, frumtölum og deilanleika
  • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. stigs jöfnum með einni áþekktri stærð, forgangsröð aðgerða og heiltöluveldi
  • jafna beinnar línu og hnitarúmfræði í tvívíðum fleti
  • framsetningu gagna á myndrænu formi


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita helstu aðgerðum á heilar tölur og geta notað víxlreglu, tengireglu og dreifireglu í talnareikningi
  • breyta milli tugabrota og almennra brota og deilanleika með lágum tölum.
  • beita veldareglum
  • setja fram svör með viðeigandi nákvæmni
  • forgangsraða aðgerðum, nota sviga og heiltöluveldi í algebru, og leysa jöfnur með einni óþekktri stærð
  • vinna með jöfnu beinnar línu, finna hallatölu og skurðpunkta við ása hnitakerfis
  • tjáð sig munnlega og skriflega á stærðfræðilegan hátt


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt, sem er metið með umræðum í tímum
  • átta sig á tenglsum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna, sem er metið með heimaverkefnum
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau, sem er metið með heimaverkefnum og prófum
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, sem er metið með umræðum í tímum
  • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga, sem er metið með virkni í tímum, umræðum og heimaverkefnum


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar