Lýsandi heiti áfanga: Íþróttasálfræði
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: IFÉ1A05
Lýsing á efni áfangans:
Í áfanganum verður farið yfir grunnatriði íþróttasálfræðinnar og þau tengd við annars vegar almenna sálfræði
og hins vegar við aðrar aðstæður eins og vinnustaði, vinahóp og nám. Skoðuð eru ýmis áreiti sem hafa áhrif á
afreksgetuna, fjallað um spennu og helstu spennuvalda ásamt slökun. Farið verður í aðferðir til að auka sjálfstraust og sjálfsmynd til að
bæta árangur. Fjallað verður um muninn á einstaklings- og hópíþróttum og farið í áhrif félagslegra þátta
á íþróttamanninn. Einnig verður leiðtoginn skoðaður. Í öllum atriðunum verður reynt að tengja þau einnig við aðrar
aðstæður en íþróttaaðstæður, s.s. vinnuna, námið og vinahópinn
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- íþróttasálfræði og mikilvægi hennar í þjálfun og keppni
- helstu atriðunum sem hafa áhrif á spennustig
- fræðist um einbeitingar- og hugarþjálfun
- mikilvægi góðs sjálfsmyndar og sjálfstrausts
- tengslum áhugahvatar og frammistöðu
- mikilvægi hvatningar í íþróttum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér einbeitingar- og hugarþjálfun
- finna leiðir til eflingar sjálfsmyndar og sjálfstrausts
- hvetja á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa aðstæður/atburði út frá sálfræðilegu sjónarhorni
- geta beitt sálfræðiaðferðum í vinnu sinni, s.s. einbeitingar-, hugar- og skynmyndarþjálfun
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar