Lýsandi heiti áfanga: Þættir úr mannkynssögu fram að 1800
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Inngangur að félagsvísindum IFÉ1A05
Lýsing á efni áfangans:
Þar sem þetta er fyrsti sagnfræði áfangi nemenda á framhaldsskólastigi er höfuðáhersla lögð á að kynna nemendur fyrir
sögu sem námsgrein og fræðigrein. Markvisst er unnið að því að kynna fyrir nemendum mismunandi tegundir heimilda og þjálfa þá
í notkun þeirra og einfaldri framsetningu efnis. Lögð er áhersla á að sýna fram á hvernig sagan birtist nemendum í
nútímanum.
Helstu efnisþættir áfangans verða:
- Fornöldin og arfur hennar í dag.
-
- Yfirlit yfir fyrstu samfélög manna, trúarbrögð þeirra og menningu
- Grísk menning, stjórnarhættir, goðaheimur, heimspeki listir og leiki
- Rómaveldi, stjórnarhættir, goðaheimur, lýðveldistíminn og keisaratíminn.
- Menningarheimur Miðalda:
-
- Upphaf kristinnar Evrópu
- Íslam og múslimar
- Ísland á miðöldum
- Síðmiðaldir: Kreppa og plága
- Ný Heimsmynd
-
- Siðaskiptin í Evrópu og á Íslandi
- Endurreisninn
- Landafundir og Vísindabylting
- Upplýsingin
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- mismunandi skeiðum mannkynssögunnar
- ýmsum sviðum og hluttakendum sögunnar, menningu og hugarfari, hversdagslífi og stjórmálum, einstaklingi og samfélagi, tækni og
vísindum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afmarka söguleg málefni, greint meginþætti og álitamál, leitað eftir mismunandi sjónarhornum, lýst málinu og gefið álit
sitt.
- Leita samhengis og tengsla milli tímabila, svæða og sviða
- í að nýta sér birtingarform sögunnar: kennslubækur, handbækur, fræðirit, myndefni og internetið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Sjá sögu Íslands í samhengi við sögu Norðurlanda, Evrópu og heimsins
- gera sér grein fyrir gildi og afstæði sögulegrar frásagnar og skýringa
- fá lifandi áhuga á fjölþættri sögu
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar