Lýsandi heiti áfanga: Næringarfræði almennings
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: INA1A05
Lýsing á efni áfangans:
Í áfanganum verður farið yfir grunnatriði næringarfræðinnar, s.s. manneldismarkmið, orkuþörf (grunnorku og heildarorku), orkuefnin
(prótein, fitu og kolvetni) og bætiefnin (vítamín og steinefni). Einnig verður farið yfir hvað orka sé, hvernig á að lesa úr
næringarefnatöflum og vörumerkingum ásamt mismunandi fæðuuppbyggingu, s.s. megrunarfæði, fitusnautt fæði, próteinskert og
próteinríkt fæði, grænmetisfæði og maukfæði. Að lokum verður farið yfir ýmis lög og reglugerðir sem tengjast
næringarfræðinni. Í áfanganum verður farið yfir matardagbóksgerð og hvernig sé hægt að skoða samsetningu fæðunnar
hjá sér (www.matarvefurinn.is)
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- mikilvægi næringar fyrir heilsu og vellíðan ólíkra hópa fólks
- hver orkuefnin séu og hvaða hlutverkum þau gegna í líkamanum
- hver bætiefnin séu, úr hvaða fæðuflokkum við fáum þau og hvaða hlutverkefnum þau gegna í líkamanum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja muninn á hinum ýmsu orku- og bætiefnum
- lesa vörumerkingar og meta næringargildi vörunnar í heild og skammtastærð hennar og þannig meta gæði vörunnar (næringarlega)
- meta skammtastærðir hinna ýmsu vörutegunda
- nýta sér veraldarvefinn (t.d. www.matarvefurinn.is) til að skoða og meta samsetningu stakrar máltíðar sem og allra máltíða dagsins
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vega og meta gæði hinna ýmsu vörutegunda út frá næringargildi þeirra
- vega og meta gæði fæðusamsetningarinnar
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar