Myndlist - MYLS1C05

Lýsandi heiti áfanga: úrganslist, starfsbraut
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn MYLS105 miðar að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna.
Áhersla er lögð á hugmynda- og tilraunavinnu þar sem unnið er í og með ólík efni og miðla auk þess sem farið verður í grunnatriði teikningar, form- og litafræði.
Unnið verður með efni sem alla jafna er hent og gefa því nýtt líf þannig að nemendur kynnast því að í myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er.

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • að myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er
  • blöndun grunnlita í litatóna
  • að hægt er að skapa raunveruleg verðmæti úr úrgangi
  • vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar
  • mismunandi nálgun listamanna við listsköpun
  • að miðla listsköpun sinni með því að sýna


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita skapandi hugsun
  • blöndun lita og tóna
  • skilningi á formum og uppbyggingu þeirra
  • sjá möguleika í úrgangi sem öllu jafna er hent og gefa nýtt hlutverk
  • beita mismunandi miðlunarleiðum í listsköpun sinni  
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vera skapandi í hugsun
  • skapa list úr úrgangi
  • fullvinna hugmyndir undir leiðsögn kennara
  • skapa eigin verk byggt á eigin listrænum styrk undir leiðsögn kennara
  • vinna á persónulegan hátt með eigin hugmynd og útfæra hana í myndverki með tilliti til lita-, og formfræði og myndbyggingar  
  • standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar listrænum styrk sínum
  • tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • meta eigið vinnuframlag


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á vinnusemi, sköpun og áræði.
Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar