Lýsandi heiti áfanga: Áræðni, ímyndunarafl og túlkun.
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: A.m.k. 10 einingar á 2. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Áræðni, ímyndunarafl og túlkun.
Í áfanganum eiga nemendur að geta sýnt frumkvæði og skapandi nálgun í verkefnum sínum og beitt viðeigandi aðferðum við
útfærslu verka. Áfanginn byggir á þeim grunni sem nemendur hafa aflað sér í teikningu og meðferð olíulita. Námið byggir
á fjölbreyttum verkefnum þar sem mikil áhersla er lögð á persónulega túlkun í meðferð lita og myndefnis.
Kennslan er einstaklingsbundin og miðar að því að gera nemendur tilbúna til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Nemendur kynnast helstu efnum sem notuð eru við olíumálun auk þess sem aðrir miðlar og efni verða skoðuð. Áhersla verður lögð
á að nemendur nýti sér teiknikunnáttu sína á skapandi hátt og verður markvisst farið í æfingar sem losa um
sköpunargáfuna auk þess að styðja við formskyn og myndbyggingu. Farið verður ítarlegar í blöndun lita og hagnýtingu litasamsetningar
á markvissann hátt. Mikil áhersla verður lögð á að nemandi geti þróað eigin hugmynd og útfært í málverk.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- Faggrein sinni
- Miðlun sköpunar sinnar
- Samfélagslegu hlutverki myndlistar
- Meðferð og túlkun á litum
- Skapandi teikningu
- Hugmyndavinnu
- Gildi þess að tjá sig um eigin sköpun og sýna
- Vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar og meðferð þeirra
- Búi yfir góðri kunnáttu til að miðla þekkingu á fagsviði sínu á fjölbreytilegan hátt
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nýta sértæka þjálfun sína í líkamsbeitingu, tækni, verklagi, skapandi aðferðum og túlkun í sinni listgrein
- Skipuleggja verkferli í listgrein sinni með ábyrgum og sjálfstæðum hætti
- Sýna frumkvæði og skapandi nálgun í listgrein sinni og beitt viðeigandi aðferðum við útfærslu verka
- Tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigin verkferli og listrænar niðurstöður
- Öðlast öryggi í beitingu mismunandi miðlunarleiða í sinni listgrein og geti valið viðeigandi leið með tilliti til verkefna og
aðstæðna hverju sinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Hagnýta þá sérhæfðu þekkingu, leikni, aðferðir og verkkunnáttu sem hann hefur aflað sér
- Öðlast sjálfstraust og sjálfstæði í þróun hugmynda og sýna áræðni við útfærslu þeirra og
túlkun
- Nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun
- Gera sér grein fyrir fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki listamannsins
- Greina, tjá sig um og meta eigin verk og annara af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi
- öðlast hæfni til að meta listrænan styrk sinn og komi auga á hagnýtingu menntunar sinnar
- Geti staðið að opinberri sýningu/tónleikum/viðburði og miðlað þar listrænum styrk sínum
- Þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á vinnusemi, sköpun og áræði.
Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar