Lýsandi heiti áfanga: Líffæra og lífeðlisfræði
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Inngangur að náttúruvísindum
Lýsing á efni áfangans:
Í áfanganum verður farið yfir helstu grunndvallaratriði í líffæra- og lífeðlisfræði. Þau atriði sem verður farið
í eru meðal annars jafnvægishneigð, svæðaskipting, áttir, líkamshol, bygging frumunnar, frumulíffærin, flutningur efna yfir himnur,
frumuskiptingar, vefi og vefjaflokka.
Farið verður einnig yfir eftirfarandi líkamskerfi:
Þekjukerfið (lagskipting húðar og líffæri húðar)
Beinakerfið (beinmyndun, flokkum beina og beingrindin)
Vöðvakerfið (hlutverk, bygging, vöðvasamdráttur, helstu vöðvar og hlutverk þeirra)
Taugakerfið (taugafruma, taugaboð, taugaboðefni, taugaflækjur og sympatíska- og parasympatíska taugakerfið, miðtauga- og úttaugakerfið)
Skynfærakerfið (skynfærin og hlutverk þeirra)
Innkirtlakerfið (kirtlarnir, vakar þeirra og hlutverk)
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- grunnbyggingu og -starfsemi mannslíkamans
- starfsemi frumna og vefjagerðar
- helstu líffærum og líffærakerfum og samspili þeirra í viðhaldi á samvægi í líkamanum
- byggingu og starfsemi þekju-, beina-, vöðva-, tauga- og innkirtlakerfis
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- útskýra byggingu og hlutverk þekju-, beina-, vöðva-, tauga- og innkirtlakerfis
- notast við latnesku fræðiheiti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- átta sig á tengslum tveggja eða fleiri líffærakerfa
- geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á uppbyggilegan máta
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar