Inngangur að náttúruvísindum - INAS1A04

Lýsandi heiti áfanga: Inngangur að náttúruvísindum, starfsbraut
Framhaldsskólaeiningar: 4
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans:
Í þessum áfanga fer fram kynning á náttúruvísindum.  Lögð verður áhersla á að nemendur læri að þekkja og skilja náttúruna og þau öfl sem að móta hana.  Sérkenni íslenskrar náttúru, lífríki, jarðfræði og veðurfar verða tekin fyrir.   Nemendur læra og þjálfast í algengum hugtökum eins og vegalengdum, metrakerfinu, hitastigi, rúmmáli, massa og eðlismassa. Lögð verður áhersla á að nemendur kynnist þessum atriðum með vettvangsferðum og verklegri kennslu.  Nemendur læra einnig að afla sér upplýsinga á netinu og halda kynningar um námsefnið.

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • algengustu fuglategundum á Íslandi og hvernig má þekkja þær
  • lífríki sjávar og helstu nytjategundir
  • hvar eldvirkni er á Íslandi og mögulegar afleiðingar eldgosa
  • hvar jarðskjálftar verða á Íslandi og mögulegar afleiðingar jarðskjálfta
  • landafræði Íslands
  • metrakerfinu og skilji samhengið milli, mm, cm, m og km
  • þyngd hluta og skilji samhengið á milli mg, gr og kg
  • rúmmáli kassalaga hluta og hverng hægt er að mæla það
  • rúmmáli óreglulegra hluta og hvernig hægt er að mæla það
  • eðlismassa hluta og hvernig hægt er að reikna hann út


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina fugla og kunna að nota fuglavísa
  • nota landakort til að átta sig á staðháttum
  • lesa úr veðurspám og finna veðurspá fyrir ákveðna staði á www.vedur.is
  • mæla lengd á hlutum uppá mm, cm og m
  • breyta kílómetrum í metra
  • mæla þyngd á hlutum
  • breyta kílógrömmum í grömm og grömmum í kílógrömm


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
  • vinna á hóp til að auka skilning á fyrirbærum í náttúrunni
  • tengja fyrirbæri í náttúrunni við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar



Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar