Lýsandi heiti áfanga: Fagurfræði
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Inngangur að félagsvísindum
Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn er almenn kynning á heimspeki fagurfræðinnar. Söguleg staða fagurfræðinnar innan heimspeki útskýrð og tengsl hennar við
hugvísindi. Sérkenni fagurfræðinnar tekin fyrir. Fjallað verður um helstu heimspekinga og kenningar fagurfræði. Skoðuð verða hugtök eins og
fegurð og sannleikur og hvernig þau koma fram í umhverfi okkar. Upplifun og reynsla af umhverfi okkar og sjónrænum þáttum í tilveru okkar verða
tekin fyrir og fjallað um útfrá sjónarhorni fagurfræðinnar.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- sögu fagurfræðinnar
- sérstöðu fræðigreinarinnar meðal vísindanna
- helstu heimspekingum fagurfræðinnar og stefnur þeirra
- helstu aðgreiningar, kenningar og lögmál fagurfræðinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita fagurfræðinni á ólík vandamál, hvort sem þau eru sjónræns eðlis eða þekkingarfræðileg
- aðgreina fagurfræðileg vandamál frá öðrum vandamálum
- beita fagurfræðilegri nálgun á sjónræna upplifun
- taka þátt í heimspekilegri rökræðu um fagurfræði, bæði með virkri hlustun og rökstuddri afstöðu
- taka þátt í rökræðu, bæði með því að beita gagnrýninni hugsun, virða skoðanir annarra og vera tilbúinn til
að taka gagnrýni á uppbyggilegan máta.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um efni þeirra
- lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta og sjónrænnar upplifunar
- tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum við ólíka viðmælendur
- skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og bregðast við viðmælendum.
- skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
- skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- meta eigið vinnuframlag
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar