Lýsandi heiti áfanga: Mannfræði
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: A.m.k. 10 einingar á 2. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn gefur innsýn í mannfræði sem vísindagrein og skiptingu hennar í undirgreinar. Aðaláhersla á félagsmannfræði og
tengsl hennar við aðrar greinar félagsvísinda en einnig kynning á fornleifafræði og líkamsmannfræði. Sérstaklega er fjallað um
þátttökuathugun og etnografíur eða þjóðlýsingar sem afurð rannsókna í félagsmannfræði. Áhersla á
að nemendur kynni sér þróunarhugtakið á gagnrýninn hátt í tengslum við þróun mannsins og þróun samfélaga.
Jafnframt að þeir kynnist ólíkum menningarheimum og þjálfist í að beita afstæðishyggju sem hluta af aðferðafræði fagsins.
Skoðaðar fjölbreyttar útfærslur af félagslegum festum sem finnast í öllum samfélögum svo sem hagkerfum, sifjakerfum og
trúarbrögðum. Eftir föngum stuðst við myndefni en sérstök áhersla lögð á að nemendur kynni sér rannsóknir
íslenskra mannfræðinga, bæði á eigin samfélagi og öðrum samfélögum. Mikilvægt að nemendur lesi kennslubókina til að
öðlast ákveðinn grunn en í tímum og heima verða gerð stærri og minni verkefni sem krefjast sjálfstæðra vinnubragða og oft eigin
leitar að heimildum. Mikilvægt að nemendur kynnist kostum og göllum ólíkra miðlunarforma og læri að leggja gagnrýnið mat á
heimildir.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- hnattrænu sjónarhorni og skiptingu mannfræðinnar í undirgreinar
- sögu félagsmannfræði og tengslum hennar við heimsvaldastefnuna
- sérstöðu mannfræði varðandi aðferðir og viðfangsefni
- skyldleika við aðrar greinar félagsvísinda
- rannsóknum erlendra og íslenskra mannfræðinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta mismunandi kenningar greinarinnar til að skoða fjarlæg og nálæg samfélög
- afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
- nýta fræðilegan texta og myndefni til skilnings á einföldum samfélögum
- miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni á skriflegan og munnlegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
- tileinka sér ákveðna afstæðishyggju, víðsýni og umburðarlyndi
- setja menningar- og félagsleg festi, svo sem hagkerfi, sifjar og trú, í hnattrænt samhengi
- beita gagnrýninni hugsun og viðurkenndum aðferðum við að koma skoðunum sínum á viðfangsefnum greinarinnar á framfæri
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar