Lýsandi heiti áfanga: Stjórnmálafræði
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: IFÉ1A05
Lýsing á efni áfangans:
Farið yfir helstu einkenni íslenskra stjórnmálaflokka og stjórnkerfis í samhengi við byggða- og samfélagsþróun eftir 1900 og fjallað um
hugmyndafræði flokkanna í alþjóðlegu samhengi. Íslenska valdakerfið skoðað, þrískipting ríkisvaldsins, stjórnarskráin
og fyrirhugaðar breytingar á henni og samspil helstu valdþátta. Markmiðið að nemendur þekki í grófum dráttum sögu og einkenni
íslenska stjórnkerfisins og flokkanna, skilji hvernig valdþættir spila saman og viti hvar helstu átakalínur liggja. Efnið á að auðvelda nemendum
að leggja gagnrýnið mat á álitaefni og taka þátt í lýðræðislegri umræðu á upplýstan hátt. Mikilvægt
að nemendur lesi kennslubókina þar sem hún miðlar ákveðinni grunnþekkingu. Í og utan kennslustunda verða gerð fjölmörg verkefni
þar sem oft reynir á eigin heimildaöflun og gagnrýnið mat á heimildum. Áhersla lögð á að fjalla um málefni sem efst eru á baugi
í stjórnmálum, efnahagsmálum og félagsmálum og efni sem nemendur hafa sérstakan áhuga á.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helstu viðfangsefnum, aðferðum og hugtökum stjórnmálafræðinnar
- hugmyndafræði, stefnu og viðhorfum í stjórnmálum
- þrískiptingu ríkisvaldsins og helstu stoðum íslenska stjórnkerfisins
- þróun íslenska valdakerfisins, stjórnmálaflokka og helstu hagsmunasamtaka
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér traustra upplýsinga um stjórnmálaleg efni
- greina upplýsingarnar og setja í fræðilegt samhengi
- beita hugtökum stjórnmálafræðinnar á dagleg pólitísk úrlausnarefni
- tengja sögu íslensku flokkanna við helstu hugmyndakerfi í stjórnmálum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja pólitískt samhengi í samfélaginu
- þekkja birtingarform einstakra stjórnmálastefna í samfélagslegum ákvörðunum
- rökræða pólitísk og samfélagsleg álitaefni á málefnalegan og gagnrýninn hátt
- taka virkan þátt í lýðræðislegu samfélagi
Námsmat:
Símat fer fram alla önnina. Gunnur einkunna er úrlausn verkefna, bæði vikulegra verkefna og annarra verkefna, prófa, nemendakynninga og umræðna í
tímum og á kennslukerfinu.
Birt með fyrirvara um breytingar
(Endurskoðað 29. janúar 2013)