Lýsandi heiti áfanga: Almen efnafræði
Framhaldsskólaeininga: 5
Undanfari: EFN2A05
Lýsing á efni áfangans
Farið verður í oxunarhvörf og hvernig hægt er að stilla efnajöfnur með oxunartölum. Farið verður í orku í efnahvörfum er
hvarfið inn eða útvermið hvarf. Inngnagur að kjarnefnafærði verður tekinn. Jafnvægislögmálið, er hvarf í jafnvægi eða ekki.
Lögmál Le Châteliers verður tekið. Sýrur og basar verða skoðaðir ásamt sýrustigi.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- oxun/afoxun og oxunartölum og hvernig hægt er að nýta þær upplysingar til að stilla efnajöfnur
- inn og útvermnum hvörfum, hvarfvarma og virkjunarorku hvarfanna
- náttúrulegri geislavirkni og hvað helmingunartími efna er. Til hvers geilsavirk efni eru notuð
- jafnvægisfastanum og hvafakvótanum og vita muninn á þeim. Þekkja mismundandi aðferðir til að breyta jafnvægisstöðunni (nota
lögmál Le Châteliers)
- hvað er sýra og hvað er basi. Þekkja muninn á sterkum og veikum sýrum og bösum
- sýrustiginu og pH hugtakinu
- sýru og basa títrunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum þeirra
- finna oxunartölur og jafnvægisstilla með þeim
- reikna út orku í efnahvörfum
- reikna út helmingunartíma geislavirkra efna
- finna jafnvægisfastann og hvarfakvótann
- nota lögmál Le Châteliers
- finna sýrustig
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- vinna í hóp til þess að auka skilning á fyrirbærum og ferlum í efnafræði
- tengja efnafræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
Námsmat:
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar ogþess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi
námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar