Barna- og unglingaþjálfun - BUÞ2A05

Lýsandi heiti áfanga: Barna- og unglingaþjálfun
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans:
Hlutverk og aðferðir í þjálfun/kennslu, þroski barna og unglinga, uppbygging á tímaseðli, stefnuyfirlýsingar íþrótthreyfingarinnar, raddbeiting og tímaseðlagerð

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • þeim grunnatriðum sem gilda við þjálfun barna og unglinga, s.s. mikilvægi reglna, klæðaburðar, raddbeitingar og hegðunar
  • hlutverkum og aðferðum í íþróttaþjálfun barna og unglinga
  • stefnuyfirlýsingum sem eru í gildi innan íþróttahreyfingarinnar í þjálfun barna og unglinga
  • mikilvægi góðrar uppbyggingar á tímaseðli
  • grunnatriðunum í þroska barna og unglinga


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita þeim aðferðum sem notaðar eru í þjálfun barna og unglinga
  • gera tímaseðil út frá þjálfunarþætti og markmiðum tímans
  • meta hvaða leikir og æfingar henta viðkomandi þroskastigi iðkandanna


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta þjálfun annarra
  • gera tímaseðil út frá þroskastigi iðkandanna


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar