Lýsandi heiti áfanga: Upplýsingatækni dreifnáms
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Enginn
Lýsing á efni áfangans:
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að kenna undirstöðuatriði í notkun á tölvum og upplýsingamennt. Lögð
er áhersla á að nemendur nýti sér hugmyndafræði dreifnáms og læri að skipuleggja sig í námi.
Leitast er við að nýta frían hugbúnað og þann hugbúnað sem er fyrir
í tölvunni. Meðal annars prufa nemendur að vinna
verkefni í meðal annars ritvinnslu, töflureikni, myndvinnslu, hönnunarforriti, teikniforriti og hljóðupptökuforriti. Nemendum er ekki bent á eitt forrit
sem er réttara en annað heldur er þeim bent á nokkur forrit sem nýtast við úrvinnslu verkefnanna.
Áfanganum er ætlað að hjálpa nemendum að blanda saman verkþekkingu á tölvur og aðferðum og skipulagi í dreifnámi.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helsta opna hugbúnaði sem er í boði
- ritvinnslu og töflureikni
- myndvinnslu og hljóðvinnslu
- tölvum og internet
- lögum og reglum sem snúa að tölvum og interneti
- hugmyndum dreifnáms
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja upp verkefni og ritgerðir eftir viðurkenndum leiðum
- nota heimildir og tilvísanir eftir APA kerfinu
- nota algengustu formúlur, jöfnur og gröf í töflureikni
- búa til margmiðlunarefni eins og stuttmyndir, teiknimyndir og hljóðefni
- nota gagnasöfn, orðabækur, þýðingavélar og leiðréttingarforrit
- nota viðeigandi hjálpargögn við frágang verkefna
- afla upplýsinga eftir fjölbreyttum leiðum
- nota þau forrit og vefi sem eru í boði við verkefnavinnu
- nota google docs og ýmis önnur frí forrit og tól sem eru í boði hverju sinni
- verða sjálfbjarga í að finna út hvað þeir geta notað sér til aðstoðar við verkefnavinnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta metið efni af neti á gagnrýninn hátt
- geta metið í hvaða formi hentar best að skila efni frá sér hverju sinni
- hafa tileinkað sér grunnhugmyndir varðandi dreifnám
- skipuleggja nám sitt
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar