Stærðfræði - STÆ2T05

Lýsandi heiti áfanga: Tölfræði og líkindareikningur
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi

Lýsing á efni áfangans:
Tölfræði: Fylgnihugtakið, ályktunartölfræði, grunnatriði úrtaksfræði. Megin markgildissetning tölfræðinnar. Tilgátur og prófanir. Framsetning gagna með töflureiknum.
Líkindareikningur: Helstu líkindadreifingar og útreikningar tengdir þeim.

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • algengustu líkindadreifingum
  • fylgnihugtakinu,
  • ályktunartölfræði
  • öryggisbili
  • framsetningu tilgáta og prófana á þeim
  • öflun tölfræðilegra upplýsinga
  • notkun framangreindrar stærðfræði við að svara hagnýtum spurningum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta einfalda líkindadreifingu við útreikning líkinda
  • reikna fylgni á milli tveggja breytna
  • túlka fylgnistuðla
  • nota hugtökin öryggisbil, öryggismörk og öryggisstig
  • setja fram tilgátur og prófa þær
  • framkvæma Z-próf og t-próf
  • nýta tölfræðileg forrit við vinnslu og framsetningu tölfræðilegra gagna.


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
  • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga


Námsmat:
Nemendur vinna verkefni frá kennara saman í hóp eða einir eins og hverjum hentar. Í lok hverrar lotu taka nemendur lotupróf sem mynda lokaeinkunn.

Birt með fyrirvara um breytingar