Lýsandi heiti áfanga: Tölur, mengi, jöfnur, rökfræði og talningarfræði
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Tölur, mengi, 1. og 2. stigs jöfnur, rökfræði og talningarfræði. Notkun vasareiknis og forrita við lausn stærðfræðilegra verkefna.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- deilanleika og frumþáttun talna, lotutugabrotum, náttúrulegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á
rauntalnaásnum
- undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og jöfnum, 1. og 2. stigs
- einföldum mengjareikningi
- einfaldri talningarfræði og líkindareikningi í endanlegu líkindarúmi með jafndreifðum líkum
- grunnatriðum töflureiknis og einhvers sérhæfðs stærðfræðiforrits
- tugveldarithætti talna og staðalformi, mælingaskekkju
- yrðingarökfræði og sanntöflum
- fallhugtakinu, formengi falls og varpmengi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- frumþátta tölur, breyta lotutugabrotum í almenn brot og fjalla um talnamengi af kunnáttu
- nota undirstöðureglur talna- og bókstafareiknings til einföldunar stærðtákna og útreiknings með vasareikni
- nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni
- meta eða finna líkur á ýmsu sem fyrir kemur í daglegu lífi
- nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
- nýta sér tugveldarithátt og mælinákvæmni til að bera saman tölur
- setja upp sanntöflu fyrir samsettar yrðingar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á
viðeigandi hátt
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta,
unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- Takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
Námsmat:
Nemendur vinna verkefni frá kennara saman í hóp eða einir eins og hverjum hentar. Í lok hverrar lotu taka nemendur lotupróf sem mynda lokaeinkunn
Birt með fyrirvara um breytingar