Spænska - SPÆ1A05

Lýsandi heiti áfanga: Grunnáfangi í spænsku
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans:
Þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins: Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Menningu spænskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna.

Námsefnið er þemaskipt og í þessum áfanga verður unnið með 4 þemu:

  1. Presentarse
  2. La familia y los amigos
  3. Tiempo libre, ocio y los estudios
  4. La rutina diaria


Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • menningu þeirra landa þar sem spænska er töluð
  • almennum orðaforða og einföldum setningum
  • mál- og samskiptavenjum
  • grunnatriðum í spænskri málfræði
  • tungumálinu og útbreiðslu þess


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skilja almennt talað mál þegar talað er skýrt og greinilega
  • Nota einfaldan orðaforða til að :
  • Tjá sig um og lýsa sér sjálfum og sínu nánasta umhverfi,
  • Tjá sig um áhugamál og daglegar athafnir.
  • Segja frá fjölskyldu og vinum.
  • Nota tungumálið í einföldum samræðum.
  • Lesa texta um efni sem hann þekkir og tileinka sér ný orð í textanum
  • Skrifa stuttan samfelldan texta um efni sem unnið hefur verið með
  • Nota meginreglur í málfræði
  • Að koma auga á blæbrigði spænskumælandi menningar


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • halda samtali gangandi og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
  • skilja talað mál um kunnuglegt viðfangsefni m.a. úr útvarpi og sjónvarpi
  • lesa stuttar blaða- og tímaritsgreinar og geta dregið ályktanir af því sem hann les
  • skrifa texta bæði frá eigin brjósti og samantektir á tilteknu efni
  • geta borið saman eigin og framandi menningu
  • auka meðvitund um eigin leiðir til að tileinka sér tungumálið


Námsmat:
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar