Lýsandi heiti áfanga: Almenn sálfræði
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: IFÉ1A05
Lýsing á efni áfangans:
Í áfanganum er sálfræðin kynnt sem fræðigrein, upphaf hennar, eðli, saga, þróun, tengsl við aðrar fræðigreinar, helstu
stefnur og grunnhugtök. Fjallað er um starfssvið sálfræðinga og helstu undirgreinar. Fjallað er almennt um mannlegt eðli, um sjálfsmynd og um samspil
hugsunar, athafna og tilfinninga. Sérstaklega er fjallað um námssálarfræði bæði á fræðilegan og hagnýtan hátt og nemendur
læra um mismunandi tegundir náms, minnisaðferðir og námsörðugleika. Nemendur kynnast rannsóknaraðferðum sálfræðinnar
bæði bóklega og verklega.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- þróun sálfræði og tengslum við aðrar fræðigreinar
- grundvallarhugmyndum sem móta kenningar í sálfræði
- leiðum sálfræði til að skýra hugsun, hegðun og tilfinningar einstaklinga
- helstu tegundum náms og algengustu námsörðugleikum
- helstu rannsóknaraðferðum í sálarfræði
- hagnýtu gildi sálfræðinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja umfjöllun um helstu hugmyndir sem mótað hafa sálfræðina
- beita algengustu hugtökum sálfræðinnar á skilmerkilegan hátt
- skoða eigin hegðun og annarra út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
- skoða eigin hugsun og tilfinningar út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
- tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis
- gera sér grein fyrir samspili hugsunar, tilfinninga og hegðunar
- geta með einföldum hætti yfirfært sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd
- tjá sig skipulega um einstaka efnisþætti á gagnrýninn hátt
- afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
- geta gert einfalda rannsókn, skilið niðurstöður og sett skilmerkilega fram
Námsmat:
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur
stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar