Lýsandi heiti áfanga: Úrgangslist
Framhaldsskólaeiningar:5
Undanfari:Inngangur að listum, ILI1A05
Lýsing á efni áfangans
Áfanginn MYL2C05 miðar að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og
þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á hugmynda- og tilraunavinnu þar sem unnið er
í og með ólík efni og miðla. Unnið verður með efni sem alla jafna er hent og gefa því nýtt líf þannig að nemendur kynnast
því að í myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- að myndlist er hægt að vinna úr hvaða hráefni sem er og í hvaða miðli sem er.
- að hægt er að skapa raunveruleg verðmæti úr úrgangi
- konsept hugsun
- vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar
- skapandi hugsun og hugflæði
- hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar
- mismunandi nálgun listamanna við listsköpun
- að miðla listsköpun sinni með því að tjá sig um hana og sýna
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- meta eigið vinnuframlag
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita skapandi hugsun
- sjá möguleika í úrgangi sem öllu jafna er hent og gefa nýtt hlutverk
- tjá sig um eigin sköpun
- beita mismunandi miðlunarleiðum í listsköpun sinni
- nýta sér hugarflæði í hugmyndavinnu
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera skapandi í hugsun
- skapa list úr úrgangi
- vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk listsköpunar
- fullvinna hugmyndir undir leiðsögn kennara
- tjá sig hiklaust um eigin sköpun við aðra viðmælendur
- skapa eigin verk byggt á eigin listrænum styrk undir leiðsögn kennara
- skilgreina eigin verk
- standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar listrænum styrk sínum
- kynna eigin verk og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um verk annara
- tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- meta eigið vinnuframlag
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á vinnusemi, sköpun og áræði.
Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar