Lýsandi heiti áfanga: Portrett
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Inngangur að listum, ILI1A05
Lýsing á efni áfangans
Í áfanganum Myl2B05 er unnið með portrett (andlitsmynd). Skoðaðar verða ólíkar vinnuaðferðir, allt frá skissu til fullkláraðs
lokaverks. Nemendur eru þjálfaðir í teiknifærni, að teikna eftir fyrirmynd og umbreyta þrívíðu formi í tvívíða
teikningu.
Unnið verður með mismunandi litasamsetningar til að skapa sannfærandi skinntóna.
Mannsandlit verður greint og ákveðnir hlutar þess teknir fyrir og þeim gerð sérstök skil.
Þetta verður gert með skissuvinnu og æfingum með olíulitum. Lögð verða fyrir ýmiskonar verkefni og æfingar sem miða að
því auka færni nemenda og þjálfa þá í yfirfærslunni frá skissum og hugmyndum yfir í fullklárað málverk.
Nemendur vinna svo á sjálfstæðan hátt að fullunnu portrettverki þar sem þeir hagnýta þá þekkingu sem þeir hafa aflað
sér. Áfanginn miðar einnig að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa,
framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á miðlun listrænna
afurða nemenda og tjáningu þeirra um eigin sköpun.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- grunnþáttum myndlistar
- að kunna skil á þeim atriðum beinabyggingar andlits sem mestu ráða um útlit einstaklinga
- sjálfstæðum vinnubrögðum og hugsun út frá hugmynd (konsept)
- vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum sinnar listgreinar
- skapandi hugsun og hugflæði
- mismunandi nálgun listamanna við listsköpun
- að miðla listsköpun sinni með því að tjá sig um hana og sýna
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- að meta eigið vinnuframlag
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- skapandi hugsun
- skissu og teiknivinnu
- að efla skilning sinn á listrænni vinnu, að upplifa, skynja og túlka það sem hann sér, upplifir.
- að tjá sig um eigin sköpun
- að beita mismunandi miðlunarleiðum í listsköpun sinni
- blöndun lita og tóna
- skilningi á formum og uppbyggingu þeirra
- að beita mismunandi miðlunarleiðum í listsköpun sinni
- að leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- að hafa skoðanir og setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vera skapandi í hugsun
- nýta reglur, form og lögmál myndlistar í eigin listsköpun
- vinna á persónulegan hátt með eigin hugmynd og útfæra hana frá skissu yfir í fullklárað málverk
- vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk listsköpunar
- fullvinna hugmyndir undir leiðsögn kennara
- tjá sig hiklaust um eigin sköpun við aðra viðmælendur
- að skapa eign verk byggt á eigin listrænum styrk undir leiðsögn kennara
- skilgreina eigin verk
- standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar listrænum styrk sínum
- kynna eigin verk og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um verk annara
- tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
- meta eigið vinnuframlag
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina og lögð er áhersla á vinnusemi, sköpun og áræði.
Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar