Lýsandi heiti áfanga: Æfingaskipulagsgerð og forvarnir
Framhaldsskólaeiningar: 2
Undanfari: Enginn
Lýsing á efni áfangans:
Bóklegi hlutinn: Farið verður nánar í æfingaskipulagsgerð fyrir þol og styrktarþjálfun. Nemendur eiga að gera æfingaprógramm
sem framkvæmt er í ræktinni á Ólafsfirði og munu nemendur framkvæma það ca á 3ja vikna fresti.
Verklegi hlutinn: Kennslan fer að mestu fram inni í íþróttasal en einnig í ræktinni og svo þegar nær dregur vori verða kennslustundirnar
einnig utandyra. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- æfingaáætlunargerð og þeim atriðum sem henni tengjast
- áhrifum vímuefna á heilsu og líkamlegt form
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- útbúa æfingaáætlun út frá markmiðum hvers og eins
- framkvæma áætlunina
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- setja upp skipulagða æfingaáætlun til skemmri og lengri tíma sem gerð er út frá raunhæfu markmiði/um
Námsmat:
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa einnig að standast mætingarkröfur
áfangans.
Birt með fyrirvara um breytingar