Íþróttaþjálfun - ÍÞÞ2A03

Nánari lýsing: Markviss íþróttaþjálfun


Framhaldsskólaeiningar: 3


Undanfari: Enginn


Lýsing:

Áfanginn er fyrir nemendur sem eru í afreksþjálfun, skipulagðri íþróttaþjálfun hjá íþróttafélagi eða stunda markvissa og skipulagða heilsuræktarþjálfun. Nemendur fá þessa þjálfun metna til eininga. Nemendur þurfa að skila ákveðinni vinnu, bæði hvað varðar þjálfunina og verkefnaskil. Engin skipulögð kennsla er í áfanganum en nemendur og umsjónarmaður munu hittast reglulega yfir önnina til að fara yfir mál hvers og eins nemanda.


Lokamarkmið:


Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • mikilvægi þjálfunar og hvað markviss og skipulögð þjálfun er

  • mikilvægi þess að skipuleggja þjálfun fram í tímann

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • gera þjálfunaráætlun sem nær yfir ákveðið tímabil (skólaönnina)

  • gera þjálfunardagbók yfir ákveðið tímabil (viku)

Nemandi hafi öðlast færni í að:

  • setja upp skipulagða þjálfunaráætlun

  • leita sér aukinnar þekkingar á viðfangsefninu sínu (íþróttagreininni eða ákveðnu þjálfunarformi)

Athugasemdir/Til umhugsunar:

Nemendur hafa aðgang að umsjónarmanni áfangans alla önnina og geta leitað til hans varðandi öll þau atriði sem tengjast áfanganum.


Námsmat:

Áfanginn er metinn lokið/ólokið.

Leiðsagnarmat með símati alla önnina.

Birt með fyrirvara um breytingar