Íþróttaþjálfun - ÍÞÞ2A02

Lýsandi heiti áfanga: Íþróttaþjálfun til náms
Framhaldsskólaeiningar: 2
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans:
Tveir umræðutímar eru á önninni, annar fyrir miðannarmat og hinn eftir miðannarmatið. Umræðuefnið er annars vegar fjölstöðuþjálfun (plyometrics training) og hins vegar liðleikaþjálfun. Nemendur fá lesefni og síðan verður umræðutími í kennslustund um efnið. Einnig eiga nemendur að velja a.m.k. 100 bls lesefni sem tengist íþróttum, hreyfingu eða heilsu almennt og eiga nemendur síðan að hafa kynningu á lesefninu í kennslustundum undir lok annarinnar.

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • mikilvægi þjálfunar og hvað markviss og skipulögð þjálfun er
  • mikilvægi þess að skipuleggja þjálfunin fram í tímann


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • gera þjálfunaráætlun sem nær yfir ákveðið tímabil (skólaönnina)
  • gera þjálfunardagbók yfir ákveðið tímabil (viku)


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • setja upp skipulagða þjálfunaráætlun
  • leita sér aukinnar þekkingar á viðfangsefninu sínu (íþróttagreininni eða þjálfuninni sinni)


Námsmat:
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að skila þjálfunaráætlun í upphafi annar, sem síðan er endurskoðuð eftir miðannarvikuna ásamt vikudagbók á hverjum sunnudagi alla önnina.

Birt með fyrirvara um breytingar