Íslenska - ÍSL3D05

 
Yndislestur
 
Í þessum áfanga er markmiðið að nemandinn
 
  • afli sér þekkingar á mismunandi tegundum bókmennta
  • öðlist leikni í að
    • lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta frá mismunandi tímum
    • flytja af öryggi vel byggða kynningu á bókmenntalegu viðfangsefni
  • geti hagnýtt sér þekkingu sína og leikni til að 
    • átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
    • tjá rökstudda afstöðu og taka þátt í málefnalegri umræðu um bókmenntir
    • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum.
 
Í áfanganum les nemandi 5 bækur af meðfylgjandi lista og að auki tvær fræðigreinar og bókmenntagagnrýni (dagblöð, tímarit, netið) tengdar bókmenntalestri sínum. Miðað er við að lestur hverrar bókar taki tvær vikur. Best er að lesa jafnt og þétt til að álagið verði sem jafnast. 
 
Engin tímasókn er í áfanganum en nemandi tilkynnir kennara hvaða bækur hann velur og heldur lestrardagbók þar sem hann gerir grein fyrir lestrarreynslu sinni. Skrifa skal tvisvar í viku í dagbókina (fjórar færslur fyrir hverja bók) um það bil eina bls. (A4) í hvert sinn. Hverjum kafla lestrardagbókarinnar skal skilað til kennara í tölvupósti eftir að lestri bókar er lokið. 
 
Þá skal nemandi mæta til viðtals við kennara, gera honum grein fyrir efni hverrar bókar munnlega og vera undirbúinn með valinn kafla úr bókinni og lesa upp. Nemandi verður að geta gert grein fyrir textavali sínu og sett það í samhengi við umræðu sína um bókina.
 
 
Námsmat:
Lestrardagbók  50%
Munnlegar greinargerðir  40%
Kynning á fræðigrein 10%