Nánari lýsing
Bókmenntir á 20. öld
Fjöldi framhaldsskólaeininga: 5
Undanfari: ÍSL2A05, ÍSL2B05
Lýsing á efni áfangans
Í áfanganum kynnast nemendur íslenskri bókmenntasögu 20. aldar og fyrstu árum 21. aldar í samhengi við strauma og stefnur í
þjóðfélags- og menningarmálum bæði hérlendis og erlendis á sama tímaskeiði. Nemendur kynnast helstu höfundum á
þessum tíma, lesa verk eftir þá, glöggva sig á inntaki bókmenntaverkanna og skoða erindi þeirra við samtímann.
Lokamarkmið áfanga
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á
- ritgerðasmíð og heimildavinnu
- helstu einkennum íslensks máls sem nýtast í ræðu og riti sem og til náms í erlendum tungum.
- orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
- mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta, stefnum í íslenskum bókmenntum að fornu og nýju og öllum helstu bókmenntahugtökum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- ritun heimildaritgerða þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan
hátt á blæbrigðaríku máli
- frágangi heimildaritgerða og hvers kyns texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta
- nýta málfræðihugtök af öryggi í umræðum um málið og þróun þess, menningu og sögu
- að skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
- að draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum, hvort sem er í ræðu eða riti,
og meta áreiðanleika þeirra
- að flytja af öryggi og sannfæringarkrafti vel upp byggða ræðu eða ítarlega kynningu á flóknu efni.
- að lesa allar gerðir ritaðs máls að fornu og nýju sér til gagns og gamans, skilja lykilhugtök og greina mismunandi sjónarmið.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
- leggja mat á og efla eigin málfærni og annarra, til dæmis með því að nýta málfræðiupplýsingar og þekkingu
sína á íslenska málkerfinu
- beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti
- tjá rökstudda afstöðu við ýmsar kringumstæður, útskýra sjónarmið og taka virkan þátt í málefnalegum
umræðum til að komast að vel ígrundaðri niðurstöðu
- draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegum
skírskotunum og ná duldum boðskap og hugmyndum
- sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og
verkum.
Námsmat
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Verkefni nemenda, jafnt munnleg sem skrifleg, eru metin til einkunnar ásamt prófum sem lögð eru fyrir
reglulega.