Nánari lýsing
Fornbókmenntir, málnotkun og ritun
Fjöldi framhaldsskólaeininga: 5
Undanfari: Enginn
Lýsing á efni áfangans
Í þessum áfanga vinna nemendur einkum með íslenskar fornbókmenntir þar sem eddukvæði og Læxdæla saga verða
meginviðfangsefni áfangans ásamt kynningu á dróttkvæðum. Einnig verða sérstök verkefni þar sem lögð er áhersla á
að vinna með margvíslegar heimildir á faglegan hátt.
Ritun: Nemendur eru þjálfaðir í að vinna úr lesefni áfangans með fjölbreyttum ritunarverkefnum; bæði með
hópverkefnum sem og einstaklingsverkefnum.
Bókmenntir og læsi: Nemendur kynna sér þann heim og hugmyndafræði sem finna má í íslenskum og norrænum
fornbókmenntum með því að lesa og vinna verkefni úr lesefni áfangans.
Málfræði: Farið er í grundvallaratriði setningafræði og fjallað um ýmislegt sem tengist málnotkun.
Lokamarkmið áfanga
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á íslenskum og norrænum fornbókmenntum
• helstu hugtökum í
ritgerðasmíð
• grundvallarvinnubrögðum við skrif
heimildaritgerða
• málfræðihugtökum og ritreglum
sem nýtast í tal- og ritmáli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- rita rökfærsluritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og
greinargóðan hátt
- nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
- nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til þess að efla eigin málfærni
- draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan
hátt
- lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
- beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
- styrkja eigin málfærni og nám í erlendum tungumálum, til dæmis með því að nýta málfræðiupplýsingar
í handbókum
- taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að
niðurstöðu
- túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
Námsmat
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Verkefni nemenda, jafnt munnleg sem skrifleg, eru metin til einkunnar ásamt prófum sem lögð eru
fyrir reglulega.