Lýsandi heiti áfanga: Bókmenntir, málsaga og nafnasiðir
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Í þessum áfanga er fjallað um ritun, bókmenntir, málsögu og goðafræði.
Ritun: Farið er yfir helstu grunnþætti ritunar og ritgerðarsmíðar og unnin verkefni til þjálfunar. Áhersla er lögð á rétta
meðferð heimilda og skráningu þeirra.
Málsaga: Fjallað er um helstu þætti málsögu og nafnasiði.
Bókmenntir og læsi: Nemendur eru þjálfaðir í notkun bókmenntahugtaka og einnig er ítarleg umfjöllun um goðafræði. Nemendur lesa
eina nútímaskáldsögu og vinna verkefni í tengslum við hana og lesa eina valbók.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helstu hugtökum í ritgerðasmíð
- helstu þáttum íslenskrar málsögu og íslenskum nafnasiðum
- mismunandi tegundum bókmennta og norrænni goðafræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
- vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
- beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
- taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að
niðurstöðu
- túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
- tengja íslenskuna við fortíð og framtíð
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi
námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar