Inngangur að náttúruvísindum - INÁ1A05

Lýsandi heiti áfanga: Inngangur að náttúruvísindum
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans:
Í áfanganum verður farið yfir grunnatriðin í þeim námsgreinum sem tengjast náttúruvísindum. Þessar greinar eru: líffærafræði, lífeðlisfræði, næringarfræði, auðlindafræði, eðlisfræði og efnafræði.

Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • grunnhugtökum næringarfræðinnar sem tengjast orku (hvað er orka, hvernig er hún reiknuð út og hver eru orkuefnin)
  • grunngerð mannslíkamans með áherslu á líffærakerfi mannslíkamans
  • hugtök og þróun auðlindafræði
  • muninum á milli sjálfbærar og ósjálfbærar nýtingar auðlinda
  • hreyfingu eftir beinni línu, hröðun og krafti
  • uppbyggingu frumefna og lotukerfinu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna út orkugildi matvara og hlutfall orkuefnanna í matvörum
  • geti útskýrt byggingu líkamans út frá líffærakerfunum
  • útskýra hreyfingu efna yfir frumuhimnur
  • geri greinarmun á endurnýjanlegum og óendurnýjanlegum auðlindum
  • lesa í landslag og átta sig á hvaða innri og ytri öfl hafa verið að verki


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta orkumikil og orkulítil matvæli
  • skilja hlutverk hinna ýmsu líffærakerfa og átta sig á helstu hugtökunum sem þeim tengjast
  • skilja umræðu og hugtök tengd auðlindafræði
  • reikna út hraða, hröðun og krafta sem verka á hluti


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar