Inngangur að félagsvísindum - IFÉ1A05

Lýsandi heiti áfanga: Inngangur að félagsvísindum
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Enginn

Lýsing á efni áfangans
Áfanginn er undirbúningur að námi í hug- og félagsvísindum og þar fá nemendur kynningu á
greinunum heimspeki, sagnfræði, sálarfræði, félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og lögfræði.
Áfanginn er undanfari annarra áfanga á hug- og félagsvísindasviði og ætlað að kynna efni, aðferðir og grunnhugtök í þessum greinum fyrir nemendum.
Nemandinn er studdur til þess að þreifa sig áfram á eigin forsendum, vinna með öðrum og fjalla um efnið út frá eigin forsendum og ná lengra byggt á fyrri þekkingu og reynslu. Lögð er áhersla á að nemendur temji sér vinnubrögð sem notuð eru í félagsvísindum.
Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru notaðar í áfanganum. Markmiðið er að tengja efni áfangans við raunverulegar aðstæður. Það krefst frumkvæðis, sköpunar og ábyrgðar á eigin námi. Nemendur afla upplýsinga eftir ýmsum leiðum og fá þjálfun í að meta eigið vinnuframlag og annarra.


Lokamarkmið áfanga
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • viðfangsefnum félags- og hugvísinda
  • vinnubrögðum félags- og hugvísinda
  • grunnhugtökum í félags- og hugvísindum
  • þeim félagslegu stofnunum sem hafa áhrif á líf einstaklinga og hvernig má hafa áhrif á þær
  • réttindum og skyldum einstaklinga í samfélaginu


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita algengustu hugtökum um viðfangsefni áfangans á skýran og skilmerkilegan hátt
  • lesa og skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
  • tjá kunnáttu sína bæði munnlega og skriflega


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti, metið með verkefnum og umræðum
  • taka þátt í umræðum um samfélagsleg málefni og myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun, metið með umræðum
  • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér þær, metið með verkefnum
  • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi og vinna með öðrum, metið með
  • umræðum, verkefnum og sjálfsmati
  • beita algengustu hugtökum félagsvísinda á skýran og skilmerkilegan hátt, metið með
  • verkefnum og umræðum
  • afla sér þekkingar um viðfangsefni áfangans á netinu, metið með verkefnum
  • tjá sig skipulega og gagnrýnið um samfélagsleg álitamál, metið með umræðum og
  • verkefnum
  • setja sig í spor annarra, metið með umræðum og verkefnum

 


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.