Enska - ENS3B05

Lýsandi heiti áfanga: Bókmenntir: Ritun og tjáning
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: A.m.k. 10 einingar öðru þrepi

Lýsing á efni áfangans:
Auknar kröfur eru gerðar til sjálfstæðis nemenda í námi og hæfileika þeirra til að koma þekkingu sinni skýrt og greinilega frá sér í ræðu sem og riti. Ætlast er til að nemendur sýni frumkvæði og eigi auðvelt með að afla sér upplýsinga um tiltekin viðfangsefni tengd áfanganum sem og að nýta sér þau hjálpartæki sem þeir þurfa til ritunar og skilnings.

Áfanginn miðar að því að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður og að þeir þjálfist í að tileinka sér sérhæfðari orðaforða tengdan bókmenntum og ýmsum fræðigreinum. Nemendur skulu getað tjáð hugsanir sína varðandi ólík efni skýrt og óhikað hvort heldur sem er í ræðu eða riti og beita rökum máli sínu til stuðnings.

Auk þess að fylgjast með dægurmálaumræðu (fréttum og greinum) líðandi stundar byggist áfanginn á kynningu á Bókmenntafræði. Nemendur kynnast sögu fræðigreinarinnar og nokkrum af helstu stefnum sem hafa risið innan hennar, ásamt þjálfun í að rýna í ýmiskonar bókmenntir með hjálp fræðilegra aðferða og hugtaka.


Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • Bókmenntafræði sem fræðigrein.
  • Mismunandi afstöðu og túlkun á bókmenntum, dýpri merkingu texta með tilliti til myndmáls og líkingamáls.
  • Þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi, með sérstakri áherslu á bókmenntir.


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
  • Nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum þar sem umfjöllunarefnið er ýmist almenns eðlis eða persónulegt.
  • Beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og/eða persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á.
  • Greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólutískt samhengi í texta.
  • Skilja sér til gangns þegar fjallað er um flókið efni.


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni.
  • Flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinagerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
  • Beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. Um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
  • Geta hagnýtt sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
  • Geta tjáð tilfinningar á skapandi hátt og beitt stílbrögðum, t.d. Myndmáli og líkingamáli.


Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.

Birt með fyrirvara um breytingar