Lýsandi heiti áfanga: Bókmenntir, menning og saga
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: A.m.k. 10 einingar á 2. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Auknar kröfur eru gerðar til sjálfstæðis nemenda í námi og hæfileika þeirra til að koma þekkingu sinni skýrt og greinilega
frá sér í ræðu sem og riti. Ætlast er til að nemendur sýni frumkvæði og eigi auðvelt með að afla sér upplýsinga um
tiltekin viðfangsefni tengd áfanganum sem og að nýta sér þau hjálpartæki sem þeir þurfa til ritunar og skilnings.
Áfanginn miðar að því að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður og að þeir þjálfist í
að tileinka sér sérhæfðari orðaforða tengdan bókmenntum og ýmsum fræðigreinum. Nemendur skulu getað tjáð hugsanir
sína skýrt og óhikað hvort heldur sem er í ræðu eða riti og beita rökum máli sínu til stuðnings.
Bókmennta- og menningasaga eru meginviðfangsefni áfangans. Litið verður á hvaða atburðir í sögunni höfðu mest áhrif á
þróun enskra bókmennta og tungu, og hvernig hugmyndafræði hvers tímabils endurspeglast í þeim textum sem einkenna það.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helstu tímabilum í sögum enskra bókmennta.
- orðaforða í ræðu og riti sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða
starfi.
- helstu menningasvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
- ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
- sögu, þjóðfélagsfræði og menningu á helstu málsvæðum enskunnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
- nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum þar sem umfjöllunarefnið er ýmist almenns eðlis
eða persónulegt
- beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og/eða persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á
- greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um
persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
- flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með
dæmum og bregðast við fyrirspurnum
- beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
- átta sig á málfarsmun, mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem
talar
- geta hagnýtt sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
- geta tjáð tilfinningar á skapandi hátt og beitt stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli
Námsmat:
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur
stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar