Lýsandi heiti áfanga: Menning, tjáning og lestur
Framhaldsskólaeiningar: 5
Undanfari: Grunnskólapróf eða áfangi á 1. þrepi
Lýsing á efni áfangans:
Áfanginn miðar að því að nemendur verði læsir á flóknari texta en áður og að þeir þjálfist í að
tileinka sér aukinn orðaforða. Nemendur skulu getað tjáð hugsun sína varðandi ólík efni í ræðu og riti og beita rökum.
Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni
þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.
Nemendur vinna viðameiri verkefni sem lúta að mismunandi menningu og siðum í löndum þar sem enska er töluð sem móðurmál eða
ríkismál og bera saman við Ísland og íslenska menningu.
Áfram verður unnið með undirstöðuatriði enskrar málfræði og málnotkunar, unnið verður með ýmiskonar efni frá
mismunandi menningarheimum og með fréttatengt efni sem snertir málefni líðandi stundar.
Lokamarkmið áfanga:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál í samanburði við Ísland og
íslenska menningu
- orðaforða í tengslum við efni áfangans
- helstu málfræðiatriðum í enskri tungu
- mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa fjölbreyttar gerðir texta í formi bókmennta, texta almenns eðlis og aðra texta sem tengjast efni áfangans
- rita lipra texta byggða á efni áfangans hvort sem um er að ræða bókmenntir eða annað efni.
- tjá sig með skýrum hætti í ræðu eða riti um málefni sem hann hefur kynnt sér
- beita viðeigandi hjálpargögnum við lestur og ritun ýmissa texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
- tileinka sér efni/inntak margvíslegra texta og geta hagnýtt sér þá á mismunandi hátt
- tjá sig skýrt og lipurlega fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
- Skrifa læsilegan texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
- hagnýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á í ræðu og riti
Námsmat:
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að
nemendur stundi námið reglulega.
Birt með fyrirvara um breytingar