Kjörnámsbraut (Staðfestingarnúmer 29)

Námsbraut sem lýkur með 200 eininga stúdentsprófi og skilar nemendum m eð hæfni á 3. hæfniþrepi. Nemendur velja þá sérhæfingu sem þeir vilja leggja áherslu á og skipuleggja náið í samráði við námsráðgjafa. Uppfylla þarf skilyrði um fjölda eininga á hæfniþrepi.

Forkröfur

Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.

Skipulag

Bókleg eða verkleg námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. hæfniþrepi. Kjörnámsbraut er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir. Kjörnámsbraut er byggð upp af kjarna og frjálsu vali. Kjarninn er 86 einingar og frjálsa valið er 114 einingar. Nemendur velja sér þá sérhæfingu sem þeir vilja leggja áherslu á í námi sínu.

Námsmat

Við skólann er leiðsagnarmat og símat án lokaprófa. Öll verkefni gilda til lokaeinkunnar. Verkefni geta verið umræður, rituð verkefni eða munnleg, ljósmyndir, kvikmyndir, próf, tónlist eða hvað annað sem við á. Mælt er með að nemendur taki áfanga í upplýsingatækni í upphafi náms til að þekkja hvernig þeir vinna mismunandi skil. Sjá nánar útfærslu í skólareglum.

Reglur um námsframvindu

Nemandi ljúki 33-34 einingum á önn til að ljúka námi á þremur árum. Uppbygging náms skal vera í samræmi við reglur um einingar á hæfniþrepum (sjá skipulag brautar). Nánari útfærslu má finna í skólareglum.

Hæfnisviðmið

  • beita almennri þekkingu á sínu sviði
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál sem tengjast sérsviðinu
  • beita fræðilegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mat, úrvinnslu og túlkun
  • vera meðvitaðir um umhverfi sitt, njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
  • taka þátt í rökræðum sem tengjast sérsviðinu
  • beita tölfræðilegu læsi til að geta lesið og sett fram rannsóknarniðurstöður með gagnrýnu hugarfari
  • stunda frekara nám, einkum tengt sínu sérsviði

Almennur kjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Íslenska ÍSLE 2RB05 2FM05 3BN05 3FO05 0 10 10
Enska ENSK 3BS05 2SL05 2LM05 0 10 5
Inngangur að náttúruvísindum INNÁ 1IN05 5 0 0
Inngangur að félagsvísindum INNF 1IF05 5 0 0
Inngangur að listum INNL 1IL05 5 0 0
Lýðheilsa LÝÐH 1GB02 1ÆF02 1HR01 1LV01 6 0 0
Danska DANS 2MS05 2MV05 0 10 0
Frumkvöðlafræði FRUM 1TR05 5 0 0
Stærðfræði STÆR 2TL05 2JM05 0 10 0
Upplýsingatækni dreifmenntar UPPD 2UD05 0 5 0
Einingafjöldi 86 26 45 15