Brautin er ætluð nemendum í starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi.
Markmið með námsleiðinni er að uppfylla þær lágmarkskröfur sem aðalnámskrá framhaldsskóla setur til stúdentsprófs. Sérhæfing nemandans er fólgin í starfsnámi hans.
Mikilvægt er að nemendur skipuleggi nám sitt til að mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem þeir stefna á í háskóla.
Forkröfur
Brautin er ætluð nemendum í starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi, eða þeim sem hafa lokið starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áföngum í þessum greinum.
Skipulag
Brautin samanstendur af þeim áföngum sem nemendur af starfsnámsbrautum þurfa að lágmarki að taka til að ljúka stúdentsprófi af starfsnámsbraut. Heildarfjöldi eininga ræðst af einingafjölda starfsnámsbrautar og þeim einingum sem koma fram hér, að því tilskyldu að þessir áfangar hafi ekki verið hluti af starfsnámsbraut. Við bætast einingar sem nemandi tekur til að mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem hann stefnir á í háskóla.
Nemendur útskrifast að lágmarki með 200 einingar. Nemandi getur tekið þessa áfanga jafnt og þétt gegnum námið eða bætt þeim við þegar starfsnámi lýkur hyggi hann á áframhaldandi nám.
Námsmat
Við skólann er leiðsagnarmat og símat án lokaprófa. Öll verkefni gilda til lokaeinkunnar. Verkefni geta verið umræður, rituð verkefni eða munnleg, ljósmyndir, kvikmyndir, próf, tónlist eða hvað annað sem við á. Mælt er með að nemendur taki áfanga í upplýsingatækni í upphafi náms til að þekkja hvernig þeir vinna mismunandi skil. Sjá nánar útfærslu í skólareglum.
Reglur um námsframvindu
Reglur um námsframvindu eru samkvæmt skólareglum.
Hæfnisviðmið
- afla sér þekkingar með fjölbreyttum hætti, meta hana á gagnrýninn hátt og nýta við verkefni daglegs lífs, til frekara náms eða starfs
- nálgast viðfangsefni sín og umhverfi á víðsýnan, umburðarlyndan og ábyrgan hátt
- fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
- skilja og bera virðingu fyrir ólíkum menningarheimum og átta sig á að tungumálið er stór þáttur í sjálfsmynd einstaklings og þjóðar
- beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
- sýna frumkvæði, skapandi hugsun og sjálfstæði í vinnubrögðum og við mat á eigin vinnuframlagi og annarra
- afla sér víðtækra upplýsinga, jafnt á íslensku sem ensku og meta áreiðanleika þeirra
- tjá sig og eiga samskipti á íslensku og erlendu tungumáli af öryggi
- gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni og taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi
- taka þátt í upplýstri umræðu og taka ábyrga afstöðu og ákvarðanir er snúa að umhverfis- og orkumálum, lífsskilyrði Jarðarbúa, vísindum og tækni
- takast á við nám á háskólastigi