Listabraut (Staðfestingarnúmer 26)

Námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Listabraut er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir. Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla. Á námsbrautinni er áhersla á hinar ýmsu listgreinar, nemendur velja sérhæfingu í myndlist, listljósmyndun eða tónlist. Á námstímanum eru í boði hinir ýmsu áfangar sem tengjast samfélaginu og atvinnulífinu, þar sem starfandi listamenn leiðbeina nemendum. Nám á listabraut er góður undirbúningur undir frekara nám í listum á háskólastigi eða störf sem tengjast sérhæfingu þeirra.

Forkröfur

Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.

Skipulag

Bókleg og verkleg námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Listabraut er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir.

Námsmat

Við skólann er leiðsagnarmat og símat án lokaprófa. Öll verkefni gilda til lokaeinkunnar. Verkefni geta verið umræður, rituð verkefni eða munnleg, ljósmyndir, kvikmyndir, próf, tónlist eða hvað annað sem við á. Mælt er með að nemendur taki áfanga í upplýsingatækni í upphafi náms til að þekkja hvernig þeir vinna mismunandi skil. Sjá nánar útfærslu í skólareglum.

Reglur um námsframvindu

Nemandi ljúki 33-34 einingum á önn til að ljúka námi á þremur árum. Uppbygging náms skal vera í samræmi við reglur um einingar á hæfniþrepum (sjá skipulag brautar). Nánari útfærslu má finna í skólareglum.

Hæfnisviðmið

  • hagnýta þá sérhæfðu þekkingu, leikni, aðferðir og verkkunnáttu sem þeir hafa aflað sér
  • þróa sjálfstætt hugmyndir og sýna áræðni við útfærslu þeirra og túlkun
  • nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við sköpun/flutning verka
  • gera sér grein fyrir fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki listamannsins
  • greina, tjá sig um og meta eigin verk og annara af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi
  • fjalla um listgrein sína og sköpun/túlkun og staðsetja hana í menningarlegu og listsögulegu samhengi
  • meta listrænan styrk sinn og koma auga á hagnýtingu menntunar sinnar
  • standa að opinberri sýningu/tónleikum/viðburði
  • vera meðvitaðir um umhverfi sitt, njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
  • stunda frekara nám í ólíkum listgreinum á næsta skólastigi

Almennur kjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Íslenska ÍSLE 2RB05 2FM05 3BN05 3FO05 0 10 10
Enska ENSK 3BS05 2SL05 2LM05 0 10 5
Inngangur að náttúruvísindum INNÁ 1IN05 5 0 0
Inngangur að félagsvísindum INNF 1IF05 5 0 0
Inngangur að listum INNL 1IL05 5 0 0
Lýðheilsa LÝÐH 1GB02 1ÆF02 1HR01 1LV01 6 0 0
Danska DANS 2MS05 2MV05 0 10 0
Frumkvöðlafræði FRUM 1TR05 5 0 0
Stærðfræði STÆR 2TL05 2JM05 0 10 0
Upplýsingatækni dreifmenntar UPPD 2UD05 0 5 0
Einingafjöldi 86 26 45 15

Brautarkjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Skapandi tónlist SKTL 2PR05 2ÞT05 2MT05 3BR05 3ST05 1HB02 1TB02 4 15 10
Ljósmyndun LJÓS 2LM05 2LS05 2MM02 2MY05 2SK02 2SP02 3HF05 3LG05 3SS05 0 21 15
Myndlist MYNL 2GM05 2HM02 2MT05 2PM05 2TÍ02 2ÚL02 2ÚL05 3LF05 3LO05 3FM05 0 26 15
Verkefnavinna VERV 2VV05 3VL05 1VV05 5 5 5
Myndlist, myndlæsi, Íslenska HETJ 3HS05 0 0 5
Markaðsfræði MARK 3AM05 3ML05 0 0 10
Hönnun HÖNN 1HF02 1HT02 1LÓ02 1TÖ02 8 0 0
Leiklist LEIK 1LE02 2 0 0
Listir LSTR 1MS02 2 0 0
Einingafjöldi 148 21 67 60

Bundið pakkaval
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Myndlistarsvið
Heimspeki HEIM 2FF05 0 5 0
Ljósmyndun LJÓS 2LM05 0 5 0
Myndlist MYNL 2GM05 2PM05 3FM05 2ÚL05 0 15 5
Saga SAGA 2LS05 0 5 0
Markaðsfræði MARK 3AM05 0 0 5
Listir LSTR 3SK05 0 0 5
Einingafjöldi 45 0 30 15
Listljósmyndunarsvið
Heimspeki HEIM 2FF05 0 5 0
Ljósmyndun LJÓS 2LM05 2LS05 2MY05 3LG05 0 15 5
Myndlist MYNL 2GM05 0 5 0
Saga SAGA 2LS05 0 5 0
Markaðsfræði MARK 3AM05 0 0 5
Listir LSTR 3SK05 0 0 5
Einingafjöldi 45 0 30 15
Tónlistarsvið
Skapandi tónlist SKTL 3BR05 2PR05 2ÞT05 3ST05 0 10 10
Heimspeki HEIM 2FF05 0 5 0
Myndlist MYNL 2GM05 0 5 0
Listir LSTR 3SK05 0 0 5
Tónfræði TÓNF 2TA03 2TB02 0 5 0
Tónheyrn TÓNH 2TA02 2TB03 0 5 0
Einingafjöldi 45 0 30 15