Náttúruvísindabraut (Staðfestingarnúmer 25)

Námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Náttúruvísindabraut er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir. Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla. Á náttúruvísindabraut er áhersla á grunngreinar og sérgreinar í stærðfræði og raungreinum, s.s. jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og er nám á henni góður undirbúningur fyrir frekara nám á háskólastigi, m.a. í tæknigreinum, náttúruvísindum, stærðfræði, raungreinum og heilbrigðisvísindum.

Forkröfur

Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskóla. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.

Skipulag

Bókleg námsbraut sem lýkur með stúdentsprófi og skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi. Náttúruvísindabraut er 200 einingar og meðalnámstími er 6-7 annir.

Námsmat

Við skólann er leiðsagnarmat og símat án lokaprófa. Öll verkefni gilda til lokaeinkunnar. Verkefni geta verið umræður, rituð verkefni eða munnleg, ljósmyndir, kvikmyndir, próf, tónlist eða hvað annað sem við á. Mælt er með að nemendur taki áfanga í upplýsingatækni í upphafi náms til að þekkja hvernig þeir vinna mismunandi skil. Sjá nánar útfærslu í skólareglum.

Reglur um námsframvindu

Nemandi ljúki 33-34 einingum á önn til að ljúka námi á þremur árum. Uppbygging náms skal vera í samræmi við reglur um einingar á hæfniþrepum (sjá skipulag brautar). Nánari útfærslu má finna í skólareglum.

Hæfnisviðmið

  • beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
  • fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
  • vera meðvitaður um umhverfi sitt, njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
  • nýta kunnáttu sína í náttúru- og raunvísindum ásamt skapandi hugsun í mögulegri framtíðarþróun
  • taka þátt í rökræðum um vísindi og tækni
  • stunda frekara nám, einkum í tæknigreinum, náttúru- og raunvísindum og heilbrigðisgreinum á háskólastigi

Almennur kjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Íslenska ÍSLE 2RB05 2FM05 3BN05 3FO05 0 10 10
Enska ENSK 3BS05 2SL05 2LM05 0 10 5
Inngangur að náttúruvísindum INNÁ 1IN05 5 0 0
Inngangur að félagsvísindum INNF 1IF05 5 0 0
Inngangur að listum INNL 1IL05 5 0 0
Lýðheilsa LÝÐH 1GB02 1ÆF02 1HR01 1LV01 6 0 0
Danska DANS 2MS05 2MV05 0 10 0
Frumkvöðlafræði FRUM 1TR05 5 0 0
Stærðfræði STÆR 2TL05 2JM05 2VI05 3FM05 3SH05 0 15 10
Upplýsingatækni dreifmenntar UPPD 2UD05 0 5 0
Eðlisfræði EÐLI 2AV05 0 5 0
Efnafræði EFNA 2EE05 0 5 0
Jarðfræði JARÐ 2JK05 0 5 0
Líffæra og lífeðlisfræði LÍOL 2BV05 0 5 0
Spænska SPÆN 1BY05 1SP05 1SO03 13 0 0
Einingafjöldi 134 39 70 25

Brautarkjarni
Námsgrein 1. þrep 2. þrep 3. þrep
Efnafræði EFNA 2AE05 3RE05 0 5 5
Sjávarútvegsfræði SJÁV 2FI05 0 5 0
Líffræði LÍFF 2GL05 0 5 0
Tölvuleikir TÖLL 2KV05 0 5 0
Forritun FORR 2LE05 2LF05 2MC02 0 12 0
Líffæra og lífeðlisfræði LÍOL 2IL05 3FR05 0 5 5
Næringarfræði NÆRI 2GR05 3NA05 0 5 5
Tölvuleikir, leikjatölvur TÖLE 2SF05 0 5 0
Tölvur TÖLV 2TT02 0 2 0
Verkefnavinna VERV 2VV05 3VL05 0 5 5
Veðurfræði VEÐU 2VF05 0 5 0
Enska ENSK 3BÁ05 3UH05 3YN05 0 0 15
Eðlisfræði EÐLI 3RE05 0 0 5
Íslenska ÍSLE 3ÆF05 3YN05 3GL05 0 0 15
Stærðfræði STÆR 3TÁ05 0 0 5
Einingafjöldi 119 0 59 60