NÆRI2GR05 - Næringarfræði almennings

grunnáfangi í næringarfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að náttúruvísindum
Í áfanganum verður farið yfir grunnatriði næringarfræðinnar, s.s. manneldismarkmið, orkuþörf (grunnorku og heildarorku), orkuefnin (prótein, fitu og kolvetni) og bætiefnin (vítamín og steinefni). Einnig verður farið yfir hvað orka sé, hvernig á að lesa úr næringarefnatöflum og vörumerkingum ásamt mismunandi fæðuuppbyggingu, s.s. megrunarfæði, fitusnautt fæði, próteinskert og próteinríkt fæði, grænmetisfæði og maukfæði. Að lokum verður farið yfir ýmis lög og reglugerðir sem tengjast næringarfræðinni. Í áfanganum verður farið yfir matardagbóksgerð og hvernig sé hægt að skoða samsetningu fæðunnar hjá sér (www.matarvefurinn.is)

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi næringar fyrir heilsu og vellíðan ólíkra hópa fólks
  • hver orkuefnin séu og hvaða hlutverkum þau gegna í líkamanum
  • hver bætiefnin séu, úr hvaða fæðuflokkum við fáum þau og hvaða hlutverkum þau gegna í líkamanum

Leikniviðmið

  • þekkja muninn á hinum ýmsu orku- og bætiefnum
  • lesa vörumerkingar og meta næringargildi vörunnar í heild og skammtastærð og þannig meta gæði hennar (næringarlega)
  • meta skammtastærðir hinna ýmsu vörutegunda
  • nýta sér veraldarvefinn (t.d. www.matarvefurinn.is) til að skoða og meta samsetningu stakrar máltíðar sem og allra máltíða dagsins

Hæfnisviðmið

  • vega og meta gæði hinna ýmsu vörutegunda út frá næringargildi þeirra
  • vega og meta gæði fæðusamsetningarinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is