    <language>is</language>
Erlend verkefni | Menntaskólinn á Tröllaskaga
Góðir gestir í miðannarviku
Það var mikið líf og fjör hjá okkur í skólanum í síðustu viku en þá var miðannarvika þegar skólastarf er brotið upp, nemendur stunda annað nám en venjulega og kennarar sinna námsmati. Að þessu sinni var vikan hluti af stærri áfanga staðnema og var tileinkuð lokasprettinum í Nordplus samstarfsverkefni með þremur skólum; einum eistneskum og tveimur finnskum. Verkefnið kallast “Bridging Minds & Cultures Through Stories” (Að tengja menningu og hug með sögum) og er markmiðið að nemendur kynnist menningu mismunandi landa og vinni með andlega heilsu í gegnum söguformið. Á síðustu tveimur önnum hafa þátttakendur komið saman í Finnlandi og Eistlandi og nú var komið að okkur að vera gestgjafar og skipuleggja dagskrá. Notuðu nemendur fyrri hluta annarinnar til skipulagningar og hafði hver og einn sitt hlutverk í undirbúningi og framkvæmd dagskrárinnar. Það sem eftir er annarinnar fer svo í mat á því hvernig til tókst.]]></description>
Nýr og hærri Erasmus+ styrkur
Mikilvægur og sívaxandi hluti skólastarfsins er erlent samstarf þar sem nemendur og starfsfólk læra hvert af öðru þvert á landamæri. Sérstakt teymi, undir stjórn Idu Semey, kennara skólans, hefur haldið utan um þennan anga starfseminnar og orðið vel ágengt að sækja um styrki til slíkra verkefna. Koma þeir úr sjóðum Erasmus+ og Nordplus áætlananna. Nemendur og starfsfólk skólans tekur reglulega þátt í slíkum samstarfsverkefnum sem víkka sjóndeildarhringinn, skapa tengsl og efla starfsfólkið fagalega. Þeir erlendu gestir sem sótt hafa MTR heim hafa lýst yfir mikilli ánægju með bæði skipulag og faglegt innihald þeirra heimsókna og hefur það orðspor skólans spurst út. Margar óskir berast því til skólans um samstarf við erlenda skóla og er nú svo komið að ekki er hægt að verða við þeim öllum.
Í dag fengum við þær ánægjulegu fregnir að skólinn hlyti styrk að upphæð 55.959 evrur til næstu 15 mánaða frá Erasmus+ og er það tæpum 7.000 evrum meira en síðast. Nýtist styrkurinn til símenntunar starfsfólks, nemendaferða, skuggakennslu (Job shadowing) og heimsóknir sérfræðinga. 
Þau ánægjulega tíðindi hafa líka borist að Bretland verður nú aftur hluti af neti Erasmus+. Er þá hægt að horfa þangað á ný varðandi samstarf því með beinu flugi frá Akureyri nýtist bæði tími og fjármagn betur en ella.  
Hér má sjá dæmi um rafbækur sem nemendur hafa útbúið um nokkur erlend verkefni. 
Listalíf í Gautaborg
Dagana 15. - 20. mars dvöldu nokkrir nemendur af listnámsbraut í Gautaborg til að kynna sér söfn, myndlistarskóla, gallerí og vinnustofur listamanna þar í borg. Flogið var frá Akureyri til Manchester og þaðan til Kaupmannahafnar þar sem tekin var lest yfir til Svíþjóðar. Það var ekki að ástæðulausu að Gautaborg varð fyrir valinu því þar býr og starfar myndlistarkennari skólans Bergþór Morthens meirihluta ársins. Hann skipulagði áhugaverða dagskrá fyrir nemendur sem sáu og upplifðu ýmislegt spennandi á listasviðinu auk þess að kynnast menningu Svíþjóðar. Tilgangur ferðarinnar var að auka víðsýni nemenda sem og þekkingu á ólíkum stefnum og stílum í myndlist.
Fyrsta daginn var farið í grasagarð til að skoða arkitektúr og fjölbreyttan gróður sem og í stærsta almenningsgarð borgarinnar, Slottsskogen, þar sem m.a. er dýragarður með ýmis skandinavísk dýr. Einnig var gengið um gamla hluta borgarinnar þar sem nemendur upplifðu líflegt mannlíf og kynntust sænskri kaffihúsamenningu auk þess að beina athyglinni að hönnun gamalla bygginga.
Dagur tvö var helgaður Listasafni Gautaborgar, Konstmuseet, þar sem farið var um sali og fjölbreytt verk skoðuð. Þar tóku nemendur einnig upp skissubækur og teikniáhöld og reyndu sig í teikniæfingum til að dýpka skilning á formi, línum og teiknitækni. Var það góð upphitun fyrir þriðja daginn þar sem farið var í skólaheimsóknir. Fyrst var formleg heimsókn í Domen Konstskola, einn fremsta listaskóla Svíþjóðar, og síðan var litið inn í  listaháskólann HDK Valand. Þótti nemendum mjög fróðlegt að sjá hvernig kennslan fer fram í þessum skólum og þá glæsilegu aðstöðu sem þar er í boði. Þennan dag var Heiðbrá Sól, fjarnemi við MTR sem búsett er í Gautaborg, með hópnum. 
Síðustu tveir dagarnir voru helgaðir heimsóknum á söfn og vinnustofur listafólks. Markmiðin voru annars vegar að skoða samtímalist og hönnunarsögu og hins vegar að sjá listamenn við störf í sínu raunverulega vinnuumhverfi. Þótti nemendum sérlega áhugavert að komast í návígi við fjölbreyttan hóp listafólks sem sinnti ýmiskonar list, sjá vinnuaðstöðu þeirra og ræða við þau um listsköpun og líf listafólks. 
Ferðin var hin ánægjulegasta, þó ferðalagið til Svíþjóðar hafi verið nokkuð krefjandi, og sáu nemendur margt fróðlegt og áhugavert. Milli dagskrárliða var tíminn nýttur til að versla og fá sér að borða á fjölbreyttum veitingastöðum og kaffihúsum. Svo þurfti að sjálfsögðu líka að sinna heimanáminu, því líkt og allar aðrar námsvikur í MTR þurfti að skila sínum verkefnum í hinum ýmsu greinum í síðasta lagi á sunnudagskvöldi.
Spilað við Skota
Um árabil hefur skólinn átt í góðu samstarfi við skólann New College Lanarkshire (NCL) í Skotlandi. Hófst það samstarf á Ecomedia Evrópuráðstefnu í Rúmeníu árið 2016, en á slíkum ráðstefnum er sjónum beint að upplýsingatækni í skólastarfi. Kennarar MTR sóttu síðar slíka ráðstefnu til kollega sinna í Skotlandi og fulltrúar skoska skólans komu til okkar þegar við héldum slíka Evrópuráðstefnu hjá okkur. Þegar aðstoðarskólameistara MTR og einum kennara okkar var boðið að sækja  ráðstefnu í NCL í fyrra kviknuðu hugmyndir að frekara samstarfi og að virkja nemendur í því. 
Fyrstu drög að slíku samstarfi voru á dögunum þegar skorað var á lið MTR í rafíþróttum að mæta tveimur liðum úr NCL. Úr urðu tvær skemmtilegar viðureignir sem mikið var lagt í því þeim var streymt í skólanum úti með kynnum og öllu saman. Hafði okkar lið betur í báðum tilfellum en allir skemmtu sér vel og kynni tókust með nemendum og þar með var tilganginum náð. Frekara samstarf er í farvatninu og verður spennandi að sjá hvernig þessi vinabönd skólanna þróast.   
Kynningar á verðlaunaverkefni
Haustið 2025 hlaut skólinn Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í kennslu (European Innovative Teaching Award – EITA) fyrir verkefnið „Heimsmarkmiðin í öllu skólastarfi – lýðræðislegt samfélag í framkvæmd“ sem er heildræn og skapandi nálgun skólans að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í allt skólastarf. Tilgangur verðlaunanna er að heiðra kennara sem nýta nýstárlegar, gagnvirkar og aðgengilegar aðferðir til að ryðja brautina fyrir bjartari framtíð komandi kynslóða. Áherslan var „Virk borgaravitund“ og að mati dómnefndar hefur MTR náð sérstaklega góðum árangri á því sviði með því að virkja starfsfólk og nemendur, meðal annars í Erasmus+ verkefnum. Verkefnið byggir á þeirri hugsjón að menntun eigi ekki aðeins að miðla fræðilegri þekkingu, heldur móta meðvitund, siðferðiskennd og virkni ungs fólks sem borgara í lýðræðislegu og sjálfbæru samfélagi.]]></description>
Áhugaverðir dagar í Tallinn
Dagana 11. - 17. október fóru nokkrir nemendur við MTR í ferð til Tallinn í Eistlandi í fylgd tveggja kennara. Þar tóku þeir þátt í Nordplus samstarfsverkefni með þremur skólum; einum eistneskum og tveimur finnskum. Verkefnið kallast “Bridging Minds & Cultures Through Stories” (Að tengja menningu og hug með sögum) og er markmiðið að nemendur kynnist menningu mismunandi landa og vinni með andlega heilsu í gegnum söguformið. Unnið var í hópum eftir ýmsum þemum eins og t.d. draumar, fjölskylda og vinátta og afrakstur vinnunnar var fjölbreyttur; tónlist, hlaðvörp, veggspjöld og listaverk. Farið var í ratleik um sögulegar slóðir í borginni og einnig voru haldin menningarkvöld þar sem hver skóli kynnti sína menningu. Fengu nemendur þá meðal annars að kynnast finnska jólasveininum og eistneskri síld. Okkar nemendur kynntu Ísland og íslenska menningu og þótti erlendu nemendunum sérstaklega áhugavert að læra um íslenska stafrófið og Íslendingabók. ]]></description>
Evrópuverðlaunum fagnað á bleikum Erasmus-degi
Í dag var Erasmus-dagur hjá okkur þar sem athygli var vakin á þeim tækifærum sem styrkir  úr Erasmus+ áætlun ESB veita nemendum sem kennurum. Fyrsta verkefnið sem MTR tók þátt í var strax á þriðja starfsári skólans, haustið 2013, og síðan þá hefur skólinn tekið þátt í á fjórða tug verkefna með skólum vítt og breitt um Evrópu. Má segja að vegna þeirra styrkja sem skólinn hefur notið úr áætluninni séu erlend samskipti eitt einkennismerkja hans og setja þau mark sitt á skólastarfið á hverri önn. 
Veraldarvanir og víðsýnir nemendur
Erasmus-dagar 2025 fara fram dagana 13. - 18. október. Tilgangur þeirra er að vekja athygli á Erasmus+ áætluninni og tækifærum hennar og eru styrkhafar hvattir til að deila reynslu sinni. Erasmus+ er styrkjaáætlun ESB fyrir mennta-, æskulýðs- og íþróttamál árin 2021 - 2027 og mun veita 26 milljarða evra í styrki á þessu tímabili til fjölbreyttra verkefna. Áætlunin styður meðal annars skiptinám, ungmennaskipti, símenntun starfsfólks, notkun upplýsingatækni í kennslu, tungumálanám, fjölbreytt samstarfsverkefni, nýsköpun í kennslufræðum og margt fleira. Ísland tekur þátt í samstarfinu í gegnum EES-samninginn. 
Nemendur og starfsfólk Menntaskólans á Tröllaskaga hafa sannarlega notið góðs af þessum styrkjum og hafa nýtt þá til fjölda erlendra verkefna. Má segja að vegna styrkjanna séu erlend samskipti eitt einkennismerkja skólans sem setja mark sitt á skólastarfið á hverri önn. 
Fyrsta verkefnið sem MTR tók þátt í var strax á þriðja starfsári skólans, haustið 2013. Þá tók skólinn þátt í Comeniusarverkefni, fyrirrennara Erasmus+, með þremur skólum í jafn mörgum löndum; Ítalíu, Spáni og Þýskalandi. Verkefnið snérist um vatn og mikilvægi þess fyrir lífríki og samfélag manna og stóð í tvö ár. MTR leiddi verkefnið og var Inga Eiríksdóttir, stærðfræðikennari, í forsvari fyrir hönd skólans. Verkefnið hófst með heimsókn tuttugu manna hóps nemenda og kennara frá Ítalíu, Spáni og Þýskalandi til Íslands í október 2023. Skipulögð hafði verið þétt og skemmtileg dagskrá sem hófst á leiðsögn í listljósmyndun, farið var í heimsókn í Skeiðsfossvirkjun í Fljótum og borholurnar í Ólafsfirði skoðaðar. Einnig var haldið í Mývatnssveit þar sem hópurinn skoðaði Dimmuborgir, Grjótagjá, hveraröndina við Námaskarð og jarðgufuvirkjunina í Kröflu. Bragðað var á séríslenskum mat, hákarli, slátri, harðfisk, silungi, skyri og fleiri slíkum réttum sem gestunum þótti misjafnlega spennandi en forvitnilegir. Gestirnir voru mjög áhugasamir, tóku mikið af myndum og spurðu margs. Voru þeir hissa á hvað við hefðum mikið vatn, mikið af grænni orku, til húshitunar og annarra þarfa. 
Tókust góð kynni meðal nemenda í þessari heimsókn sem voru svo endurnýjuð í næstu heimsóknum til hinna landanna þriggja þar sem margt áhugavert um nýtingu vatns og mikilvægi þess bar fyrir augu. Frá þessu fyrsta verkefni hafa nemendur sem kennarar tekið þátt í ýmsum spennandi verkefnum í fjölda Evrópulanda fyrir tilstilli Erasmus+ áætlunarinnar. 
Hér má sjá myndir úr þessu áhugaverða fyrsta verkefni:
MTR hlýtur Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í kennslu 2025
Í vikunni tilkynnti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hvaða aðilar hlytu Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í kennslu (European Innovative Teaching Award – EITA) árið 2025. Ýmis áhugaverð verkefni eru verðlaunuð þar á meðal verkefni MTR „Heimsmarkmiðin í öllu skólastarfi – lýðræðislegt samfélag í framkvæmd“ sem er heildræn og skapandi nálgun skólans að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í allt skólastarf. Verður verkefnið fulltrúi Íslands á sérstakri verðlaunahátíð sem haldin verður í Brussel dagana 8.-9. desember.]]></description>
Speglun frá góðum gestum
Á hverju skólaári fáum við heimsóknir kennara erlendis frá; kennara í starfsspeglun (Job Shadowing) sem vilja fá að fylgjast með kennslu og fræðast um skólann okkar og kennsluhætti. Leggjum við áherslu á að taka vel á móti þessum gestum, skipuleggjum vandaða og fjölbreytta dagskrá og hugum vel að því að góður tími gefist til skoðanaskipta svo við lærum líka af gestum okkar. Þeir fá að skoða áfanga í mismunandi greinum, kynnast kennslukerfi skólans, ýmsum matsaðferðum og fjölbreyttum skilamöguleikum verkefna svo eitthvað sé nefnt. Fastir liðir í þessum heimsóknum eru kynning á skólanum, viðtöl við nemendaráð, skólastjórnendur og fjölda kennara.  
Alla síðustu viku voru hjá okkur tveir kennarar frá Belgíu og einn frá Lanzarote og komu þeir hingað á styrk frá Erasmus+. Voru þeir alsælir með heimsóknina, sögðust hafa lært fjölmargt af henni og buðu fulltrúa okkar skóla velkomna til sín við tækifæri. Í mati þeirra á heimsókninni kom m.a. fram að andrúmsloftið í skólanum hafi verið einstaklega gott, þeim hafi fundist þeir sérlega velkomnir í skólann og dagskráin hefði verið vel skipulögð. Allir hefðu gefið sér góðan tíma til að ræða við þá til að gefa þeim innsýn í stefnu skólans, skólastarfið og kennsluhætti. 
Aðspurðir um hvað þeir hefðu lært nýtt og tækju með sér úr þessari heimsókn sögðust þeir m.a. hafa lært mikið um aðferðafræðina sem notuð er í skólanum, verkfærin sem notuð eru í kennslu og til að veita nemendum endurgjöf. Þeim fannst frábært hvernig kennarar eru að tileinka sér gervigreind og vinna með hana, frelsið í námskránni og sveigjanlegar stundatöflur komum þeim á óvart sem og ábyrgð nemenda á eigin námi. Þeim leist vel á vikuskipulag verkefna og það sé gott fyrir nemendur að hafa allt námsefni aðgengilegt á einum stað í kennslukerfinu. 
Mjög fróðlegt hafi verið að fá að heyra skoðanir nemenda á náminu og spjallið við Láru skólameistara hafi verið mjög upplýsandi. Hugmyndafræði hennar um menntun sé frábær og gaman væri að sjá hvernig henni hefur tekist að mynda teymi kennara sem stefna allir í sömu átt og hugsa alltaf um hvað sé best fyrir nemendurna.
Sögðu þeir heimsóknina hafa víkkað sjóndeildarhringinn á ýmsa vegu, þeir hafi séð eitthvað nýtt og gagnlegt á hverjum degi og hafi fengið margar hugmyndir til að deila með samstarfsfólki sínu. Heimsóknin hafi kveikt löngun til að beita nýjum aðferðum í kennslu, halda áfram að læra og deila þekkingu. 
Erlent samstarf í blóma
Eitt af einkennismerkjum skólans er öflugt erlent samstarf og nær það bæði til starfsfólks og nemenda. Á þessari önn er búið að skipuleggja ýmsar ferðir og hafa fengist til þeirra styrkir úr Nordplus,menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og menntaáætlun Evrópusambandsins, Erasmus+. 
Á önninni munu tveir kennarar halda til Danmerkur að fylgjast með kennslu og fara þeir í sitt hvorn skólann. Tveir kennarar halda til Portúgal í nokkra daga í sömu erindagjörðum í október og mánuði síðar sitja þrír kennarar námskeið um gervigreind í Porto. Auk þess munu skólameistari og tveir kennarar halda til Singapúr á stærstu ráðstefnu sem haldin er í Asíu um upplýsingatækni og kynna sér það nýjasta í þeim efnum.
Tvær nemendaferðir eru á döfinni. Hópur nemenda mun dvelja um vikutíma í Eistlandi í október til að taka þátt í fyrsta hluta verkefnis sem kallast Að tengja huga og menningu gegnum sögur. Í þessu verkefni eru fjórir skólar, tveir frá Tallin í Eistlandi, einn finnskur skóli og svo MTR. Einnig mun nemendaráð skólans halda til Kaupmannahafnar í nóvember og vinna þar að verkefni sem kallast Nemendalýðræði og félagsleg sjálfbærni með nemendaráðum tveggja skóla í okkar fornu höfuðborg. 
Heimsóknir erlendis frá í MTR verða einnig nokkrar á önninni. Þessa vikuna eru t.d. tveir kennarar frá Belgíu og einn frá Lanzarote, austustu eyju Kanaríeyja, að kynna sér starfshætti í skólanum og ræða við kennara og nemendur um nám og kennslu.    
Fjölþjóðlegt fjör og krydd í tilveruna
Í síðustu viku voru nemendur og kennarar frá hinum danska Ungdomshøjskolen ved Ribe í heimsókn á Norðurlandi og glöddu m.a. okkur í Menntaskólanum á Tröllaskaga með nærveru sinni. Hópurinn, sem samanstóð af nemendum víða að úr heiminum, kom til landsins á mánudeginum og keyrði beint til Akureyrar þar sem var gist meðan á dvölinni stóð. Á þriðjudegi kom hópurinn í MTR og dagskráin hófst með því að nemendaráð sagði gestunum frá skólanum og skipulagi námsins og gestirnir kynntu í kjölfarið sinn skóla og tóku svo lagið. Þá tók við áhugaverð athöfn þar sem Sigurður Mar Svínfellingagoði, og kennari í MTR, hélt blót að heiðnum sið á túninu við skólann og bauð gestina velkomna. Að henni lokinni sýndu hinir erlendu gestir dans og fengu svo nemendur og kennara MTR með sér í fjörugan línudans áður en sest var að snæðingi. Eftir hádegið skoðaði hópurinn sig um á Ólafsfirði í blíðviðrinu og síðan var brunað á Mývatn til að upplifa þau náttúruundur sem þar eru.
Á miðvikudeginum var haldið til Siglufjarðar þar sem var rölt um bæinn og veitinga notið í bakaríinu áður en haldið var í Ljóðasetur Íslands, sem annar kennari í MTR, Þórarinn Hannesson, veitir forstöðu. Þar fengu gestirnir fræðslu um íslenska ljóðlist, sérstaklega Eddukvæðin, sem og fornsögurnar og íslenskar þjóðsögur og tengsl Tolkiens og fleiri rithöfunda við þennan arf okkar. Fræðslan var krydduð með söng, gítarspili og kveðskap og í lok heimsóknar stigu tveir nemendur á stokk og fluttu frumsamin ljóð. Seinni part dagsins var komið saman í hinni nýju menningarmiðstöð Brimsölum  í Ólafsfirði, sem enn einn kennarinn úr MTR, Ida Semey, rekur. Þar voru sagðar sögur, flutt tónlist og rætt um heima og geima áður en haldið var til Akureyrar í háttinn.
Á fimmtudagsmorgni var enn komið í Ólafsfjörð og nú var farið í fjöruhreinsun og svo búin til listaverk úr einhverju af því sem fannst í fjörunni. Eftir hádegið var úrvinnsla ferðarinnar sett í myndbandsbúning og svo skellti hópurinn sér í sund á Ólafsfirði áður en lagt var í hann til Keflavíkur. Flaug hópurinn utan á föstudagsmorgni eftir viðburðaríka daga á Íslandi. Við þökkum þeim fyrir samveruna og kryddið í tilveruna hjá okkur. 
Forvitnilegt og nýstárlegt skólastarf í augum Frakka
Það var gestkvæmt hjá okkur síðustu vikuna fyrir páskafrí. Meðal þeirra sem heimsóttu okkur voru fjórir franskir kennarar, frá sveitarfélaginu Lesquin nyrst í Frakklandi, sem voru hér í skólanum í fjóra daga til að fylgjast með kennslu og kynna sér skólastarfið. Fengu þeir kynningu á kennslufyrirkomulagi skólans, sátu kennslustundir og áttu viðtöl við nemendur, kennara og skólastjórnendur. Var ýmislegt með öðrum hætti en þeir áttu að venjast. Í lok heimsóknarinnar voru þeir beðnir um að nefna orð sem lýstu upplifun þeirra af skólanum og þetta var þeirra niðurstaða: Frelsi, virðing, hljóðlátt, vellíðan, áhugavert, forvitnilegt og nýstárlegt.  ]]></description>
Ánægjuleg speglun frá góðum gestum		
Síðastliðið haust hóf skólinn þátttöku í NordPlus-verkefni sem miðar að því að bæta félagslega sjálfbærni meðal drengja og draga úr brottfalli þeirra úr framhaldsskóla. Verkefnið er unnið í samstarfi við tvo framhaldsskóla í Danmörku og einn á Grænlandi þar sem lögð er áhersla á að kanna ástæður fyrir lakari námsárangri drengja og hugað að mögulegum lausnum. Fyrir hönd MTR taka þau Guðbjörn Hólm Veigarsson, Ida Semey og Hólmar Hákon Óðinsson þátt í verkefninu.Hugmyndir hópsins beinast meðal annars að áhrifum samfélagsmiðla á athygli drengja, kynjaðri væntingu um hegðun og árangur og stöðluðum hugmyndum um karlmennsku sem gætu haft neikvæð áhrif á námsárangur. Með verkefninu á m.a. að kanna hvort drengir upplifi skort á stuðningi vegna staðalímynda um karlmennsku, þar sem það gæti verið litið á það sem veikleika að biðja um aðstoð og viðurkenna að maður geti ekki reddað hlutunum sjálfur.
Þátttakendur hófu verkefnið snemma sl. haust með heimsókn í GUX Nuuk framhaldsskólann á Grænlandi og í framhaldi af því var komið saman í Christianshavn gymnasium og Örestad gymnasium í Kaupmannahöfn. Í þessari viku er lokahnykkurinn og er hópurinn staddur hjá okkur í MTR til að kynna sér starfshætti og skoða hvort eitthvað í kennslumódeli skólans (Tröllaskagamódelið) gagnist verkefninu. Næstu vikur verða svo nýttar í að vinna úr upplýsingum sem safnað hefur verið í þessum heimsóknum og komið hafa fram í könnunum og viðtölum tengdum verkefninu. Munum við segja frá úrvinnslu og niðurstöðum þegar þar að kemur. 
Í hópnum sem heimsótti okkur voru átta kennarar sem starfa í Danmörku og einn sem starfar á Grænlandi. Hafði hópurinn heyrt eitt og annað um skólann, frá fulltrúum okkar í verkefninu, og var ekki að kaupa allt sem þar kom fram en í heimsókninni sáu hinir erlendu gestir að þar var ekki farið með neinar ýkjur. Það sem kom þeim mest á óvart var sú ábyrgð sem nemendur í skólanum taka á eigin námi, hversu andrúmsloftið í skólanum var afslappað og þægilegt, hversu mikið frelsi nemendur hafa til að sinna náminu eftir sínu höfði og með hvað fjölbreyttum hætti nemendur geta unnið verkefni sín þar sem styrkleikar þeirra njóta sín. Gestirnir hlýddu á kynningar frá bæði nemendum og kennurum og voru þeir sérstaklega heillaðir af innihaldsríkri og upplýsandi kynningu frá nemendaráði. Gestirnir áttu einnig viðtöl við nemendur, kennara og skólastjórnendur og það kom þeim skemmtilega á óvart hversu mikill samhljómur var með öllum þeim sem rætt var við. Allir innan skólasamfélagsins höfðu sömu sögu að segja af ágæti námsskipulagsins, höfðu sömu upplifunina af skólabragnum og þótti vænt um skólann sinn. Var heimsókn þessi hin ánægjulegasta og alltaf er gott að fá að spegla sig í augum annarra.
Kynning á Alþjóðaviku NCL í Skotlandi
Á dögunum heimsóttu Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, aðstoðarskólameistari MTR, og Inga Eiríksdóttir, kennari, skólann New College Lanarkshire (NCL) í Skotlandi í tilefni af árlegri alþjóðaviku skólans. Voru þær þar í boði NCL en skólarnir hafa verið í samstarfi á undanförnum árum. Gestir í alþjóðavikunni komu víða að; frá Brasilíu, Egyptalandi, Filippseyjum, Hollandi, Ítalíu, Kína og Íslandi. Fluttar voru kynningar um alþjóðasamstarf og kynntu okkar konur MTR og mikilvægi alþjóðaverkefna í starfi skólans. Kynningarnar voru frá bæði framhaldsskólum og háskólum og þótti okkar fulltrúum áhugavert að heyra hvernig ólíkir skólar nýta sér alþjóðasamstarf til að auka fjölbreytni í skólastarfinu og valdefla nemendur.
Einnig var boðið upp á kynningar í skólanum NCL, sem er með 3 mismunandi starfsstöðvar og mjög öflugt verknám. Fulltrúar okkar litu m.a. inn í upplýsingatæknitíma í tveimur starfsstöðvum þar sem Inga kynnti nemendum fyrirkomulag náms og kennslu hjá okkur. Einnig heimsóttu þær starfsbraut skólans sem er mjög stór og með fjölbreytta starfsemi. Var sú heimsókn mjög áhugaverð sem ferðin í heild sinni. 
Fróðleg ferð til Lettlands 
Vikuna 3. - 9. mars hélt hópur nemenda til Lettlands þar sem þeir héldu áfram þátttöku í Nordplus verkefni um menningararf. Verkefnið hófst sl. haust þegar nemendur frá Saldus vidusskola, í bænum Saldus í Lettlandi, heimsóttu okkur hér á Tröllaskaganum og kynntust íslenskum menningararfi. Var það m.a. gert með heimsóknum á söfn og setur í sveitarfélaginu auk þess sem nemendur veltu fyrir sér hvaða þýðingu menningararleifðir hefðu fyrir komandi kynslóðir, hvernig við gætum viðhaldið þeim og hvort menningararfleifðir gætu hjálpað til við að auka tengsl fólks með mismunandi bakgrunn. Lettnesku nemendurnir voru í heimagistingu hjá nemendum og starfsfólki MTR og fengu þannig nasasjón af lífinu í íslensku samfélagi.]]></description>
Skólameistari flutti fyrirlestur í Osló
Sú þekking og reynsla sem starfsmannahópur skólans býr yfir er mikil og má með sanni kalla hana auðlind. Kennarar og stjórnendur skólans hafa haldið fyrirlestra víða, innanlands sem utan, þar sem þeir fjalla um fjarkennslu og kennslumódel skólans og kennarar við skólann sinna einnig kennslu í upplýsingatækni við Háskólann á Akureyri. Á dögunum hélt Lára Stefánsdóttir, skólameistari, erindi á ráðstefnu í Osló þar sem umfjöllunarefnið var lýðfræðilegar breytingar og tæknileg tækifæri i framhaldsskólanámi. Ráðstefna for fram í ráðstefnuhöllinni Expo Rebel og var ætluð stjórnendum framhaldsskóla og sveitarfélaga. Tilgangur hennar var að setja á dagskrá hvaða afleiðingar lýðfræðilegar breytingar í sveitarfélögum hefðu á menntamál.]]></description>
Spennandi námskeið á Fuerteventura
Dagana 17. - 20. febrúar sátu tveir kennarar skólans og skólameistari námskeið á eyjunni Fuerteventura, sem er næst stærst Kanaríeyjanna og er um það bil 100 km undan norðurströnd Afríku. Námskeiðið kallaðist Sjálfbærni í kennslustofunni og í lífinu og var útbúið sérstaklega fyrir íslenska framhaldsskóla af Menningarfélaginu "Cuidando lo Nuestro" sem starfar á eyjunni. Kennarar og skólastjórnendur frá 5 íslenskum framhaldsskólum á landsbyggðinni og einum grunnskóla skráðu sig til leiks. Á námskeiðinu var hvatt til vistfélagslegrar nálgunar og ábyrgðar á náttúrunni, tengd saman staðbundin og alþjóðleg sjálfbærnimál og skoðað hvernig hægt væri að innleiða sjálfbærni og umhverfismennt í skólastarf í takti við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Unnið markvisst með Heimsmarkmiðin
UNESCO er alþjóða heitið á Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Meginmarkmið hennar er að stuðla að friði og öryggi í heiminum með því að efla alþjóðlega samvinnu á sviði menntunar, vísinda- og menningarmála. Á vegum UNESCO hefur verið starfrækt alþjóðlegt samstarfsnet skóla frá árinu 1953 og kallast það UNESCO-skólar. Þeir eru nú um 12.000 talsins og starfa í 182 landi á leik-, grunn– og framhaldsskólastigi. Skólarnir vinna eftir fjórum meginþemum; alþjóðasamvinna, starfsemi Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun og friður og mannréttindi.]]></description>
Haldið upp á Alþjóðadag barna
Í dag, þann 20. nóvember, er Alþjóðadagur barna. Þetta er dagurinn þar sem við fögnum og minnum á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þau lögfestu réttindi sem þessi útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims tryggir öllum börnum. Barnasáttmálinn var samþykktur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1989, á Íslandi var hann lögfestur á Alþingi árið 2013. Í tilefni dagsins fá börn og ungmenni um allan heim orðið og láta rödd sína og skoðanir heyrast. Ungmennaráð UNICEF á Íslandi útbjó m.a. myndband með kraftmiklum skilaboðum ungmenna til fullorðinna hér á landi og ráðamanna um allan heim. Barnaheill lét einnig gera myndband þar sem rætt er við börn sem hafa hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stríðsátaka, loftslagsbreytinga eða náttúruvár og áfallið sem því getur fylgt. Er þar m.a. rætt við börn frá Grindavík sem þurftu að flytja þaðan vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.
Til að fagna deginum komu nemendur MTR saman í sal skólans og horfðu á myndböndin og síðan var farið í spurningakeppni þar sem spurningarnar snérust um Barnasáttmálann og þau réttindi sem hann á að tryggja börnum um allan heim. Spurningarnar sömdu nemendur í áfanga sem ber titilinn Heimsmarkmið - umhverfi og sjálfbærni þar sem fjallað er um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna út frá umhverfisvernd, mannréttindum, heilbrigði og félagslegri velferð. Markmið spurninganna var að fá nemendur til að velta fyrir sér mismunandi stöðu barna í heiminum. 
Hér eru myndböndin tvö. 