Almennt | Menntaskólinn á Tröllaskaga
Skemmtilegt spilakvöld
Gagnlegur skólafundur
Síðasta dag septembermánaðar var haldinn skólafundur hjá okkur í MTR. Skólafundir eru haldnir hvert skólaár og á þeim er fjallað um þætti sem tengjast námskrá skólans. Sjálfsmatsteymi skólans stýrir framkvæmd hans í samvinnu við nemendaráð. Skólafundir eru ein leið til að efla nemendalýðræði en þar eru rædd ýmis málefni sem koma bæði frá nemendum skólans sem starfsfólki. Á fundinum í gær var nemendum skipt upp í hópa og stýrði hópstjóri úr hópi nemenda umræðunni í hverjum hópi. Umræðuefnin að þessu sinni snérust m.a. um félagslíf nemenda, námsaðstöðu, notkun gervigreindar og námsmat.
Líflegar umræður sköpuðust um öll umræðuefnin og nemendur nýttu tækifærið til að koma sínum skoðunum á framfæri. Hópstjórar skráðu hugmyndir og niðurstöður hvers hóps og tekur sjálfsmatsteymið þær síðan til skoðunar og umræðu. Nýtast þær í umbótaáætlun skólans og til að bæta skólastarfið hjá okkur á ýmsan hátt. Nemendaráð tekur einnig þær hugmyndir sem bárust varðandi félagslífið til umfjöllunar svo það sé í sem mestum takti við vilja nemenda.
Nemandi úr MTR verðlaunaður
Menntavísindasvið Háskóla Íslands vinnur árin 2026 - 2028 að rannsókninni Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum og hefur rannsóknin undirtitilinn Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda. Þar sem heiti rannsóknarinnar er ekki sérlega þjált ákvað stjórnendateymi hennar að fá nemendur í þátttökuskólunum til liðs við sig að finna aðgengilegt nafn á rannsóknina og að hanna merki hennar. Í mars sl. var send út áskorun til skólanna og var henni vel tekið í MTR þaðan sem flestar tillögurnar komu.
Á dögunum bárust okkur svo þau gleðitíðindi að nemandi skólans, Margrét Hlín Kristjánsdóttir, hefði átt vinningstillöguna í nafnasamkeppninni. Tillaga hennar: MIRA, þótti frumleg, einföld og alþjóðleg. Hugtakið MIRA vísar í ólíkum tungumálum til mikilvægra þátta sem snerta markmið verkefnisins og mismunandi verkþætti þess. Algengasta merking þess kemur úr spænsku og merkir “sjáðu” eða “líttu á”, í slavneskum tungumálum þýðir orðið “friður” eða “heimur”. Aðspurð segir Margrét að svo djúpar pælingar hafi þó ekki verið að baki tillögunni, henni hafi bara þótt orðið fallegt og að það hljómaði vel.
Í pósti frá stjórnunarteymi rannsóknarinnar er Margréti þakkað kærlega fyrir þátttökuna og þetta góða nafn sem verður notað á jafnt innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Mun hún fá afhent verðlaun á Málþingi og kynningu á verkefninu þann 15. október nk. í Veröld – húsi Vigdísar.
Hér eru nánari upplýsingar um verkefnið:
Verkefnið MIRA kannar með hvaða hætti stefna og starf UNESCO framhaldsskóla á Íslandi endurspeglar umræðu um mannréttindi, sjálfbærni og frið. Í verkefninu vinna kennarar og rannsakendur í sameiningu að þróun kennslufræðilegrar nálgunar sem styður við lýðræðislega þátttöku nemenda og félagslega tengslamyndun. Rannsóknin fer fram á tímabilinu 2026 - 2028 og er unnin í samvinnu við Félag Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi sem heldur utan um vinnustofur kennara og nemenda. Niðurstöður verkefnisins nýtast í rauntíma inn í kennslu og til eflingar á náms- og félagsumhverfi nemenda en verða einnig þegar fram í sækir hluti af stærra samanburðarverkefni sem snýr að útfærslu UNESCO skóla um allan heim á heimsmarkmiði 4.7. Rannsóknaraðilar frá Japan, Englandi og Írlandi koma að verkefninu og munu meðal annars leiða fyrstu vinnustofur kennara. Verkefnið fékk styrk frá Menntarannsóknarsjóði Mennta- og barnamálaráðuneytisins árið 2025.
Hér er slóð á vefsíðu verkefnisins www.borgaravitund.hi.is
Fræðsla um umferðaröryggi
Í kjölfar hörmulegra slysa í umferðinni á Íslandi undanfarna mánuði var ákveðið að fá lögregluna í heimsókn í skólann með fræðslu fyrir nemendur um umferðaröryggi því aldrei er góð vísa of oft kveðin. Í gær fór þessi fræðsla fram þegar fyrrverandi nemandi skólans, Júlíus Þorvaldsson, sem nú er útskrifaður úr lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri heimsótti gamla skólann sinn. Júlíus starfar við almenn lögreglustörf en auk þess er hann í hlutverki samfélagslögreglu sem sér um ýmiskonar fræðslu. Þessi fræðsla miðar að því að auka öryggi borgaranna og koma í veg fyrir afbrot auk þess sem hún er leið til að bæta þjónustu og efla tengsl lögreglunnar við almenning, ekki síst unga fólkið.
Samfélagslöggur heimsækja eftir beiðni skóla, félagsmiðstöðvar, stofnanir og félög til að miðla upplýsingum um öryggi og forvarnir og er hægt að óska eftir heimsókn frá samfélagslöggu á síðu lögreglunnar. Í erindi sínu fór Júlíus m.a. yfir almennar umferðarreglur, sýnileika lögregunnar, notkun endurskinsmerkja og öryggi í tengslum við rafknúin ökutæki eins og rafmagnshlaupahjól. Að sýna ábyrgð í umferðinni var útgangspunkturinn og má segja að slík fræðsla eigi sérlega vel við á menntaskólaárunum þegar flestir eru að taka bílpróf og fara sem ökumenn út í umferðina í fyrsta sinn.
Nemendur voru mjög áhugasamir, þótti erindið áhugavert og spurðu margs að því loknu.
Vitundarvakning um frið
Kennari í MTR skrifar bók um réttarsálfræði
Kennarastarfið kallar á frjóa hugsun, ekki síst á tímum mikilla tæknibreytinga. Það má segja að kennarar við Menntaskólann á Tröllaskaga séu sískapandi. Aðlaga þarf námsefni, búa til verkefni, smíða nýja áfanga og endurskoða þá sem til eru svo námið haldist í takti við tímann, huga að nýjum kennsluháttum, nýju námsmati, nýju kennsluefni og svo mætti áfram telja. Sumir ganga enn lengra og fara í það verkefni að semja nýtt námsefni ef þeim finnst það sem til er ekki standast tímans tönn eða er jafnvel ekki til á okkar ylhýra ástríka tungumáli.
Guðbjörn Hólm Veigarsson er með BA í sálfræði og MEd í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri. Hann kennir aðallega sálfræði við MTR og bjó m.a. til áfanga í réttarsálfræði. Við öflun efnis fyrir áfangann komst hann að því að lítið er til um þessa áhugaverðu grein á íslensku og langaði til að bæta úr því. Sótti hann því um og hlaut styrk úr Þróunarsjóði námsgagna hjá Rannís til að skrifa námsbók um réttarsálfræði. Bók sem væri ætluð til kennslu á framhaldsskólastigi og gagnaðist líka öllum þeim sem vilja skilja betur hvað réttarsálfræði er.
Bókin var um tvö ár í vinnslu en í henni eru dregnar saman niðurstöður rannsókna, efni úr erlendum fræðibókum, fjölmargar heimildir og ýmis dæmi sem varpa ljósi á helstu viðfangsefni greinarinnar á aðgengilegan og fræðilegan hátt. Hún kom út nú síðsumars, er um 270 bls. og er fáanleg bæði sem rafræn námsbók sem og í prentuðu formi.
Bókin kallast einfaldlega Réttarsálfræði og er fyrsta kennslubókin um þá fræðigrein á íslensku. Segir höfundur m.a. á baksíðu að það sé hans einlæga von að bókin muni efla þekkingu, gagnrýna hugsun og áhuga á þessari heillandi undirgrein sálfræðinnar. Rafræn útgáfa bókarinnar fæst á síðunni payhip.com/rettarsalfraedi en þeir sem vilja eignast prentað eintak panta á netfanginu gudbjornholm@gmail.com
Allt sem við veitum athygli vex
Í dag fengum við sérlega góða heimsókn þegar Héðinn Unnsteinsson sótti okkur heim og hélt erindi um andlega líðan fyrir nemendur og starfsfólk. Héðinn hefur undanfarin 25 ár verið frumkvöðull í geðheilbrigðismálum og er höfundur bókarinnar „Vertu úlfur“ sem kom út árið 2015. Þjóðleikhúsið setti samnefnt verk á fjalirnar árið 2021. Hann er með kennaramenntun og auk þess menntaður stefnumótunarsérfræðingur með meistaragráðu í alþjóðlegri stefnumótun. Hann starfar í forsætisráðuneytinu og hefur sinnt stundakennslu við Háskóla Íslands auk þess að vera rithöfundur og fyrirlesari. Áður starfaði hann hjá heilbrigðisráðuneytinu og Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Á síðasta ári einsetti hann sér að fara með erindi um andlega líðan í alla framhaldsskóla landsins og fékk nokkra góða bakhjarla til þess að styrkja sig til þess. Hófst hann handa á síðustu önn og heldur nú áfram þar sem frá var horfið. Í erindi sínu ræðir Héðinn um ýmsa grunnþætti geðheilsu, s.s. skynjun, tilfinningar og hugsun sem og mikilvægi tengsla, góðra samskipta og sjálfsmildi. Auk þess viðrar hann áhyggjur sínar af minnkandi tengslum við náttúruna og milli kynslóða sem og yfirdrifna skjánotkun og hvaða afleiðingar þessi atriði hafa á andlega heilsu okkar.
Erindi Héðins var sérlega líflegt og  áhugavert og vakti viðstadda til umhugsunar um ýmsa þætti sem geta stuðlað að betri andlegri heilsu. Benti hann m.a. á þá kunnu staðreynd að allt sem við veitum athygli vex. Meðan við eyðum um 5 klukkustundum í símum okkar á sólarhring, eins og evrópskar kannanir sýna, verður framlag okkar til líðandi stundar takmarkað sem og tenging okkar við eigin vitund.
Fjörugur og sólríkur nýnemadagur
Í dag var nýnemadagur hjá okkur í MTR þar sem nýnemarnir okkar voru boðnir velkomnir í skólann. Líkt og venja er fyrir var boðið upp á dagskrá undir stjórn nemendafélagsins með það að markmiði að hrista allan nemendahópinn saman. Hófst hún með því að nemendum var skipt í hópa og kepptu þeir sín á milli í ratleik sem fór fram bæði innan skólans og utan. Þar þurfti að leysa ýmsar frumlegar þrautir og skila lausnum þeirra með myndrænum hætti þar sem allir í hópnum sáust vinna saman að lausninni.
Í hádeginu var boðið upp á pizzuhlaðborð og síðan hélt fjörið áfram með ýmiskonar boðhlaupum og leikjum. Var þar hart barist en drengilega hvort sem svolgra þurfti í sig hráum eggjum, gleypa fjölda sykurpúða, koma niður þeirri skemmtilegu blöndu sem kókosbollur og gosdrykkir eru, finna kennara í felum eða hlaupa um í björgunarbúningum.
Veðrið lék við mannskapinn og allir skemmtu sér vel meðan á fjörinu stóð. Að því loknu var tekið til óspilltra málanna við að sinna náminu á ný.
MTR tók þátt í Treyjudeginum
Á Treyjudeginum, þann 4. september, klæðist fólk uppáhalds treyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein. Er þetta einföld og skemmtileg leið fyrir vinnustaði, skóla og íþróttafélög til að sýna stuðning í verki. Það er styrktarfélagið Börn með krabbamein sem stendur að deginum en félagið styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti. Dagurinn var fyrst haldinn á Englandi árið 2013 en fljótlega bættust Noregur, Svíþjóð og Danmörk við og nú Ísland.
Nemendur og starfsfólk MTR tóku áskorun nemendafélags skólans vel að sýna stuðning í verki við þetta þarfa málefni og fjölmenntu í skólanum klædd hinum ýmsu íþróttabúningum eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Nýtt nemendaráð
Nemendafélagið Trölli sér um að skipuleggja félagsstarf nemenda í skólanum og hefur staðið fyrir öflugu starfi síðustu ár. Stjórn félagsins gætir einnig hagsmuna nemenda skólans og á formaður hennar m.a. sæti í skólaráði. Stjórnin er skipuð 6 nemendum og er valið í hana í upphafi hvers skólaárs. Ný stjórn tók til starfa í gær og bíða hennar ýmis spennandi verkefni. Það umfangsmesta á næstunni er að skipuleggja nýnemadag fyrir þann glæsilega hóp nýnema sem hóf nám hjá okkur á dögunum.
Mikill hugur er í nýrri stjórn sem stefnir að fyrsta viðburði strax í þessari viku. Hún er þannig skipuð að formaður er Edda Björg Magnúsdóttir og varaformaður Birgir Bragi Heimisson. Margrét Hlín Kristjánsdóttir skipar embætti ritara, Tristan Nökkvi Magnússon er gjaldkeri og Þórarinn Eldjárn Jónsson meðstjórnandi. Ásdís Inga Gunnarsdóttir er svo markaðsstjóri og sér um samfélagsmiðla. Eru nemendur hvattir til að fylgjast með samfélagsmiðlum nemendafélagsins á Instagram og TikTok.
Fyrsti skóladagurinn á nýrri önn
Þá er skólastarfið hafið á ný eftir gott sumarfrí. Fyrsti nemendadagurinn var í gær og var ánægjulegt að sjá okkar unga og efnilega fólk flykkjast í skólann tilbúið að takast á við fyrstu verkefni annarinnar. Nýnemar, í hópi staðnema, eru fleiri en síðustu annir og mátti vel merkja blöndu af tilhlökkun og kvíða meðal þeirra sem eðlilegt er á fyrsta degi. Eldri nemendur gengu til sinna verka af yfirvegun og aðstoðuðu einnig nýnemana fyrstu skrefin. Flestir staðnemanna koma úr Fjallabyggð en einnig frá Dalvíkurbyggð og úr Eyjafjarðarsveit.
Líkt og síðustu annir eru meira og minna allir áfangar sem eru í boði fullsetnir. Skráðir nemendur eru á sjöunda hundrað, meirihluti þeirra fjarnemar vítt og breitt um landið sem og erlendis. Líkt og staðnemar hafa þeir fengið upplýsingar um hvernig þeir skrá sig inn í sína áfanga í kennslukerfi skólans og hafa hafist handa enda fyrstu skil verkefna nk. sunnudag.
Kennarar hafa verið iðnir að sækja sér endurmenntun í sumar og sinnt undirbúningi fyrir önnina síðustu vikur. Lokahnykkur þeirrar vinnu voru tveir sameiginlegir vinnudagar í upphafi vikunnar þar sem ýmis mál voru rædd og krufin.
Upphaf kennslu á haustönn
Þrjátíu og fjórir nemendur útskrifaðir
Fjölmenni á sýningaropnun
Vorsýning skólans opnaði laugardaginn 16. maí og verður opin á opnunartíma skólans fram að útskrift þann 23. maí. Á sýningunni má sjá fjölda glæsilegra verka sem nemendur hafa unnið á önninni í hinum ýmsu greinum. Aðsókn á opnunardegi hefur líklega aldrei verið betri og er hluti skýringarinnar sá að þann dag fóru einnig fram sveitarstjórnarkosningar og var Menntaskólinn á Tröllaskaga kjörstaðurinn í Ólafsfirði. Var gaman að sjá viðbrögð sýningargesta og upplifa þær líflegu umræður sem sköpuðust um verk nemenda og afrakstur annarinnar. Rafrænar sýningar verkefna eru einnig aðgengilegar á vef skólans. Þar má einnig sjá fjölmörg metnaðarfull dæmi um skapandi vinnu nemenda skólans.
Eru allir hvattir til að leggja leið sína í skólann þessa síðustu dag sem sýningin er opin og skoða glæsileg verk nemenda okkar.
Vorsýning á laugardaginn
Undirbúningur fyrir vorsýningu skólans er nú í fullum gangi. Til sýnis verður afrakstur nemenda af vinnu annarinnar í hinum ýmsu greinum undir einkunnarorðum skólans; frumkvæði - sköpun - áræði. Verkin streyma nú til okkar frá nemendum og stundum dugar ekkert minna en stórtækar vinnuvélar til að koma verkunum á sýningarstað eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Einnig verða rafrænar sýningar á vef skólans með verkefnum úr nokkrum greinum.
Vorsýningin opnar í húsnæði skólans laugardaginn 16. maí kl. 13.00 og verður opin til 16.00. Þennan dag fara einnig fram sveitarstjórnarkosningar og svo vel vill til að Menntaskólinn á Tröllaskaga er kjörstaðurinn í Ólafsfirði. Það er því hægt að slá tvær flugur í einu höggi; að kjósa og njóta í leiðinni glæsilegrar sýningar. Sýningin verður svo opin á opnunartíma skólans fram að útskrift þann 23. maí. Rafrænu sýningarnar eru aðgengilegar á vef skólans sem og sýningar síðustu ára. Þar má sjá fjölmörg metnaðarfull dæmi um skapandi vinnu nemenda skólans.
Eru allir hvattir til að leggja leið sína í skólann þessa daga og skoða glæsileg verk nemenda okkar.
Nýr og hærri Erasmus+ styrkur
Mikilvægur og sívaxandi hluti skólastarfsins er erlent samstarf þar sem nemendur og starfsfólk læra hvert af öðru þvert á landamæri. Sérstakt teymi, undir stjórn Idu Semey, kennara skólans, hefur haldið utan um þennan anga starfseminnar og orðið vel ágengt að sækja um styrki til slíkra verkefna. Koma þeir úr sjóðum Erasmus+ og Nordplus áætlananna. Nemendur og starfsfólk skólans tekur reglulega þátt í slíkum samstarfsverkefnum sem víkka sjóndeildarhringinn, skapa tengsl og efla starfsfólkið fagalega. Þeir erlendu gestir sem sótt hafa MTR heim hafa lýst yfir mikilli ánægju með bæði skipulag og faglegt innihald þeirra heimsókna og hefur það orðspor skólans spurst út. Margar óskir berast því til skólans um samstarf við erlenda skóla og er nú svo komið að ekki er hægt að verða við þeim öllum.
Í dag fengum við þær ánægjulegu fregnir að skólinn hlyti styrk að upphæð 55.959 evrur til næstu 15 mánaða frá Erasmus+ og er það tæpum 7.000 evrum meira en síðast. Nýtist styrkurinn til símenntunar starfsfólks, nemendaferða, skuggakennslu (Job shadowing) og heimsóknir sérfræðinga.
Þau ánægjulega tíðindi hafa líka borist að Bretland verður nú aftur hluti af neti Erasmus+. Er þá hægt að horfa þangað á ný varðandi samstarf því með beinu flugi frá Akureyri nýtist bæði tími og fjármagn betur en ella.
Hér má sjá dæmi um rafbækur sem nemendur hafa útbúið um nokkur erlend verkefni.
Ánægjuleg árshátíð
Snýr til baka í nám eftir langan feril í tónlist
Einn af þeim áföngum sem er kenndur á þessari önn er fjölmiðlafræði. Á dögunum fengu nemendur það skemmtilega verkefni að skrifa grein sem tengdist skólanum og höfum við þegar birt eina þeirra. Fyrirsögn hennar var MTR gaf mér annað tækifæri. Hér kemur önnur áhugaverð grein af sama meiði, skrifuð af Gunnari Inga Guðmundssyni sem búsettur er í Keflavík.
Það er aldrei of seint að snúa aftur í nám og hefja nýjan kafla og það er einmitt það sem ég er að gera í dag. Ég er 46 ára gamall og stunda nú fjarnám við Menntaskólann á Tröllaskaga (MTR) með það skýra markmið að ljúka stúdentsprófi og halda svo áfram í háskóla. Lögfræðin hefur alltaf verið spennandi fag í mínum augum og mig langar að skapa mér fleiri tækifæri til framtíðar.
Á sínum tíma hætti ég í framhaldsskóla til að einbeita mér mestmegnis að tónlistinni því allur áhuginn var þar.  Ég starfaði lengi sem tónlistarmaður og lagahöfundur, lærði hljóðfæraleik í FÍH og fór síðan til Boston í Berklee College of Music til að læra lagasmíðar og kvikmyndatónlist. Ég hef náð góðum árangri á þeim vettvangi, gefið út sólóplötur og samið lög fyrir marga af okkar þekktustu flytjendum – þar á meðal þjóðhátíðarlagið „Draumur um þjóðhátíð“ árið 2003.
Þótt tónlistin hafi gengið vel átti ég erfitt með hefðbundið nám á yngri árum. Ég mætti illa, fékk áminningar og ákvað að lokum að fara bara út á vinnumarkaðinn. Ég keypti mína fyrstu íbúð 19 ára gamall og þá þýddi ekkert að vera að rembast í skóla; ég þurfti að vinna. Á meðan flestir æskuvinir mínir héldu sig á „beinu brautinni“ og útskrifuðust tvítugir, valdi ég tónlistina og vinnuna. En löngunin til að klára stúdentsprófið hvarf aldrei.
Menntaskólinn á Tröllaskaga reyndist vera kjörinn kostur fyrir mig því þar er lögð áhersla á verkefnavinnu frekar en hefðbundin lokapróf. Sú nálgun hentar mér mun betur eftir áratugi í skapandi starfi; ég fæ að kafa dýpra í efnið og nýta eigin reynslu og styrkleika. Mér fannst í raun ekkert erfitt að aðlagast náminu aftur eftir þetta langa hlé. Hópvinna með öðrum nemendum hefur haft mjög jákvæð áhrif á mig og aukið áhugann. Í dag er ég með miklu skýrari markmið og meiri reynslu sem veganesti. Námið hefur aukið sjálfstraust mitt og kennt mér ný vinnubrögð og skipulag. Ég er lifandi sönnun þess að nám er ekki bundið við aldur – með réttu hugarfari er alltaf hægt að byrja upp á nýtt.
Líflegur dagur bókarinnar
Dagur bókarinnar er 23. apríl og var það Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sem átti frumkvæðið að því að gera þennan dag að alþjóðadegi bóka. Markmiðið er að hvetja fólk, og þá einkum ungt fólk, til að lesa meira og kynna sér verk þeirra fjölmörgu höfunda sem hafa auðgað líf mannkyns um aldir. Svo skemmtilega vill til að að Nóbelskáldið okkar, Halldór Laxness, fæddist 23. apríl.
Sem UNESCO-skóli var skipulögð dagskrá hjá okkur í MTR í tilefni dagsins, var hún haldin 21. apríl þar sem sá 23. er frídagur þetta árið. Starfsfólkið greip með sér sínar uppáhaldsbækur að heiman og voru þær til sýnis og skoðunar á sal skólans. Nemendur og starfsfólk tóku þátt í skemmtilegri spurningakeppni um bókmenntir þar sem 30 fjölbreyttar spurningar reyndu á kunnáttu svarenda í hinum ýmsu bókmenntagreinum. Einnig svöruðu bæði nemendur og kennarar könnun þar sem spurt var um uppáhaldsbækur þeirra og ástæðuna fyrir því vali. Voru niðurstöður settar upp í líflegt orðaský. Að lokum lék Hamingjubandið, skipað kennurum og nemanda, nokkur lög við góðar undirtektir. Í tilefni dagsins urðu fyrir valinu lög sem samin hafa verið við íslensk ljóð.
Tókst vel til og líflegar umræður sköpuðust um bækur og bókmenntir og þar með var tilganginum náð.
Listalíf í Gautaborg
Dagana 15. - 20. mars dvöldu nokkrir nemendur af listnámsbraut í Gautaborg til að kynna sér söfn, myndlistarskóla, gallerí og vinnustofur listamanna þar í borg. Flogið var frá Akureyri til Manchester og þaðan til Kaupmannahafnar þar sem tekin var lest yfir til Svíþjóðar. Það var ekki að ástæðulausu að Gautaborg varð fyrir valinu því þar býr og starfar myndlistarkennari skólans Bergþór Morthens meirihluta ársins. Hann skipulagði áhugaverða dagskrá fyrir nemendur sem sáu og upplifðu ýmislegt spennandi á listasviðinu auk þess að kynnast menningu Svíþjóðar. Tilgangur ferðarinnar var að auka víðsýni nemenda sem og þekkingu á ólíkum stefnum og stílum í myndlist.
Fyrsta daginn var farið í grasagarð til að skoða arkitektúr og fjölbreyttan gróður sem og í stærsta almenningsgarð borgarinnar, Slottsskogen, þar sem m.a. er dýragarður með ýmis skandinavísk dýr. Einnig var gengið um gamla hluta borgarinnar þar sem nemendur upplifðu líflegt mannlíf og kynntust sænskri kaffihúsamenningu auk þess að beina athyglinni að hönnun gamalla bygginga.
Dagur tvö var helgaður Listasafni Gautaborgar, Konstmuseet, þar sem farið var um sali og fjölbreytt verk skoðuð. Þar tóku nemendur einnig upp skissubækur og teikniáhöld og reyndu sig í teikniæfingum til að dýpka skilning á formi, línum og teiknitækni. Var það góð upphitun fyrir þriðja daginn þar sem farið var í skólaheimsóknir. Fyrst var formleg heimsókn í Domen Konstskola, einn fremsta listaskóla Svíþjóðar, og síðan var litið inn í  listaháskólann HDK Valand. Þótti nemendum mjög fróðlegt að sjá hvernig kennslan fer fram í þessum skólum og þá glæsilegu aðstöðu sem þar er í boði. Þennan dag var Heiðbrá Sól, fjarnemi við MTR sem búsett er í Gautaborg, með hópnum.
Síðustu tveir dagarnir voru helgaðir heimsóknum á söfn og vinnustofur listafólks. Markmiðin voru annars vegar að skoða samtímalist og hönnunarsögu og hins vegar að sjá listamenn við störf í sínu raunverulega vinnuumhverfi. Þótti nemendum sérlega áhugavert að komast í návígi við fjölbreyttan hóp listafólks sem sinnti ýmiskonar list, sjá vinnuaðstöðu þeirra og ræða við þau um listsköpun og líf listafólks.
Ferðin var hin ánægjulegasta, þó ferðalagið til Svíþjóðar hafi verið nokkuð krefjandi, og sáu nemendur margt fróðlegt og áhugavert. Milli dagskrárliða var tíminn nýttur til að versla og fá sér að borða á fjölbreyttum veitingastöðum og kaffihúsum. Svo þurfti að sjálfsögðu líka að sinna heimanáminu, því líkt og allar aðrar námsvikur í MTR þurfti að skila sínum verkefnum í hinum ýmsu greinum í síðasta lagi á sunnudagskvöldi.