Menntaskólinn á Tröllaskaga
Faglegar og lærdómsríkar heimsóknir
Innritun í fjarnám
Líflegir hópar í heimsókn
Það hefur verið gestkvæmt hjá okkur að undanförnu, svona á milli óveðursdaga. Við höfum m.a. fengið til okkar tvo nemendahópa til að kynna sér hvernig náminu hjá okkur er háttað og hvernig lífið gengur fyrir sig í skólanum. Fyrir tveimur vikum komu nemendur 10. bekkjar Dalvíkurskóla í heimsókn og í morgun voru það 10. bekkingar í Grunnskóla Fjallabyggðar sem sóttu okkur heim. Báðum hópum var skipt upp í smærri einingar sem fóru á milli stöðva í skólahúsinu. Þeirra biðu ýmis verkefni og kynningar til að fá innlit í skólastarfið. Fulltrúar nemendaráðs höfðu útbúið spurningar um skólann sem þau lögðu fyrir gestina auk þess sem þau sögðu frá félagsstarfi nemenda og skólastarfinu eins og það kemur nemendum fyrir sjónir. Í listastofunni spreyttu gestirnir sig í að teikna hvert annað, í ljósmyndastofunni voru teknar líflegar myndir auk þess sem gripið var í hljóðfæri og slegið á létta strengi. Náms-og starfsráðgjafi kynnti gestunum hvernig náminu er háttað, gerði grein fyrir hinu mikla erlenda samstarfi sem skólinn á í og ýmsu fleira spennandi sem er í gangi hjá okkur og síðast en ekki síst var farið í heimsókn í tölvuleikjastofuna þar sem leiknin í hinum ýmsu leikjum var reynd. Að loknu hópastarfinu var boðið upp á pizzuveislu og þótti það ekki ónýtt.
Var ekki annað að sjá og heyra en gestirnir væru ánægðir með það sem bar fyrir augu og eyru og þó nokkrir lýstu yfir áhuga á að koma hér til náms næsta haust. Þökkum við þessum líflegu hópum fyrir komuna og vonumst til að sjá þau sem flest hér næsta vetur.
Hamingjan er heilsubót
Einn af alþjóðadögum Sameinuðu þjóðanna er Alþjóðlegur dagur hamingjunnar. Hefur hann verið haldinn hátíðlegur þann 20. mars frá árinu 2013 til að minna á að hamingjan sé almennur réttur og markmið allra jarðarbúa. Dagurinn er notaður til að stuðla að velsæld, gleði og jákvæðni með ýmsum samfélagslegum viðburðum sem einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir taka þátt í. Dagurinn fellur undir þriðja heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem snýst um heilsu og vellíðan.
Menntaskólinn á Tröllaskaga vinnu markvisst með heimsmarkmiðin og í tilefni dagsins voru nemendur hvattir til að mæta í skólann í klæðnaði sem þeim liði sérstaklega vel í. Auk þess var skorað á nemendur og starfsfólk að setja á sérstaka myndasíðu myndir af því sem veitti þeim hamingju. Var áhugavert að sjá hversu margar myndir sýndu útivist, hreyfingu og samveru en auk þess var kaffi og súkkulaði áberandi á kennaravængnum. Til að auka hamingju dagsins var boðið upp á súkkulaðikökur að loknum hádegisverði. Var ekki annað að sjá en hamingjustuðullinn hækkaði töluvert við það.
Talsettu vandað efni fyrir börn
Starfsfólkið spriklaði í Lífshlaupinu
Menntaskólinn á Tröllaskaga er heilsueflandi framhaldsskóli og leggur áherslu á að hlúa að líkamlegri sem andlegri heilsu nemenda og starfsfólks. Er það gert með ýmsum hætti og má þar m.a. nefna árlega þátttöku starfsfólks í Lífshlaupinu, heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Lífshlaupið stóð yfir allan febrúarmánuð að þessu sinni og tók fjöldi vinnustaða vítt og breitt um landið þátt.
Rúmur helmingur starfsfólks MTR var með í ár og hreyfði sig í rúmar 22 þúsund mínútur þær fjórar vikur sem átakið stóð. Um 160 vinnustaðir voru í flokki skólans, vinnustaðir með 10-29 starfsmenn, og endaði skólinn í 72. sæti. Er það heldur lakari árangur en áður en það er nú ekki aðalatriðið heldur það að gera fólk meðvitað um gildi hreyfingar fyrir líkama og sál. Fjölbreytnin var mikil í vali á hreyfingu okkar starfsfólks því alls voru skráðar 26 mismunandi tegundir hreyfingar. Ganga var mest stunduð síðan líkamsrækt og crossfit og þá skíði og jóga. Meðal annarra hreyfitegunda má nefna dans, hjól, hlaup, hnefaleika, skauta, sleðaferðir og sund. Allt svo hressandi og skemmtilegt!
Á skíðum skemmti ég mér
Ástráður í heimsókn
Fastur liður í forvarnarvinnu skólans er heimsókn frá Ástráði, sem er kynfræðslufélag læknanema við Háskóla Íslands. Ástráður sendir fulltrúa með fræðsluerindi í alla framhaldsskóla landsins ár hvert og er sérstaklega lögð áhersla á að ná eyrum nýnema. Í morgun var komið að MTR og fluttu tveir læknanemar áhugavert erindi þar sem rætt var um kynheilbrigði, kynsjúkdóma, getnaðarvarnir og fóstureyðingar og síðast en ekki síst hvatt til ábyrgrar kynhegðunar.
Nemendum þótti erindið fræðandi og áhugavert og sögðu að það vekti þá til umhugsunar um þessi mikilvægu málefni. Notuðu þeir einnig tækifærið til að spyrja út í eitt og annað sem læknanemarnir svöruðu af fremstu getu.
Spilað við Skota
Um árabil hefur skólinn átt í góðu samstarfi við skólann New College Lanarkshire (NCL) í Skotlandi. Hófst það samstarf á Ecomedia Evrópuráðstefnu í Rúmeníu árið 2016, en á slíkum ráðstefnum er sjónum beint að upplýsingatækni í skólastarfi. Kennarar MTR sóttu síðar slíka ráðstefnu til kollega sinna í Skotlandi og fulltrúar skoska skólans komu til okkar þegar við héldum slíka Evrópuráðstefnu hjá okkur. Þegar aðstoðarskólameistara MTR og einum kennara okkar var boðið að sækja  ráðstefnu í NCL í fyrra kviknuðu hugmyndir að frekara samstarfi og að virkja nemendur í því.
Fyrstu drög að slíku samstarfi voru á dögunum þegar skorað var á lið MTR í rafíþróttum að mæta tveimur liðum úr NCL. Úr urðu tvær skemmtilegar viðureignir sem mikið var lagt í því þeim var streymt í skólanum úti með kynnum og öllu saman. Hafði okkar lið betur í báðum tilfellum en allir skemmtu sér vel og kynni tókust með nemendum og þar með var tilganginum náð. Frekara samstarf er í farvatninu og verður spennandi að sjá hvernig þessi vinabönd skólanna þróast.
Söngurinn ómar á öskudegi
Hamingjumolar á starfsmannafundum
Að huga vel að heilsunni, jafnt andlegri sem líkamlegri, er afskaplega mikilvægt og það erum við meðvituð um hér í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Skólinn er Heilsueflandi framhaldsskóli og hefur sína heilsu- og forvarnarstefnu. Íþróttir og ýmiskonar heilsurækt hefur ávallt verið mikilvægur þáttur í skólastarfinu og síðustu ár hefur andlegi þátturinn orðið fyrirferðameiri. Hafði Covid-faraldurinn þar nokkuð að segja með öllum sínum félagslegu takmörkunum og skerðingu á lífsgæðum sem hafði neikvæð áhrif á andlega heilsu. Nemendum stendur til að boða að sækja ýmsa áfanga um þessi efni s.s. áfanga í geðrækt, jákvæðri sálfræði og kynheilbrigði auk þess sem nemendur fá reglulega fyrirlestra um slík málefni t.d. þegar Geðlestin og Ástráður, kynfræðslufélag læknanema, koma í heimsókn.
Starfsfólk skólans hefur einnig tekið þessi mál föstum tökum og markvisst hefur verið unnið að því að efla andlega heilsu innan starfsmannahópsins. Fagfundir hafa t.d. verið nýttir til að kynna starfsfólki ýmis ráð til að bæta sína andlegu líðan. Sáu ýmsir gestafyrirlesarar og kennarar skólans um þá fræðslu og starfsfólk hefur stutt hvort annað og veitti ýmis góð ráð sín á milli. Einnig hefur starfsfólk setið námskeið um streituvalda og aðferðir til að takast á við þá og ýmsum heilsutengdum ráðum hefur verið deilt á sérstakri heilsusíðu starfsfólks á fésbókinni.
Á þessari önn var ákveðið að „Hamingjumolar” yrðu fastur liður á vikulegum fundum starfsfólks. Á hverjum fundi deilir einn úr starfsmannahópnum einhverjum mola um hamingjuna, það geta t.d. verið góð ráð, persónuleg hugleiðing eða umfjöllun um hamingjuna út frá ýmsum hliðum. Í þessum molum hingað til hefur t.d. verið minnt á að vera dugleg að iðka þakklæti, rækta sambandið við sína nánustu, setja sér raunhæf markmið, að gefa af sér, að njóta litlu hlutanna í lífinu, stunda reglulega hreyfingu, njóta náttúrunnar, fagna birtunni og að skapa. Hafa þessir Hamingjumolar reynst vel og skapast hafa líflegar umræður um hamingjuna og mikilvægi þess að sjá frekar það jákvæða í lífinu en það neikvæða.
MTR er Stofnun ársins 2025
Niðurstöður í vali á Stofnun ársins 2025 voru tilkynntar á hátíð Sameykis í Reykjavík í gær, þann 12. febrúar, en titlana Stofnun ársins hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í níu þáttum að mati starfsfólks þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða. Þættirnir níu eru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægja og stolt og jafnrétti. Þetta framtak Sameykis er ómetanlegt, þarna fæst mæling á viðhorfi starfsmanna til vinnustaðar síns og við getum notað gögnin í innra mat og til að bæta starfsemina.
Útnefnt er í þremur flokkum og eftir fjölda á vinnustað og varð Menntaskólinn á Tröllaskaga í efsta sæti í flokki minni ríkisstofnana en í þeim flokki voru rúmlega 50 stofnanir. MTR hlaut því titilinn Stofnun ársins í þeim flokki og gerði gott betur því MTR fékk hæstu einkunn allra þeirra 140 ríkisstofnana sem tóku þátt. Hefur skólinn nú verið í einu af efstu þremur sætunum í sínum flokki í rúman áratug þar af í efsta sæti fimm sinnum.
Lára Stefánsdóttir, skólameistari, og nokkrir kennarar skólans voru viðstaddir hátíðina í gær og veittu verðlaununum viðtöku.
Hér má sjá nánari fréttir af niðurstöðum úr Stofnun ársins 2025: https://www.sameyki.is/kannanir/stofnun-arsins-2025/
Kynningar á verðlaunaverkefni
Aldrei fleiri nemendur
Líkt og síðustu annir er skólinn yfirfullur og ekki var hægt að taka við fleirum þrátt fyrir mikla eftirspurn. Nemendur á vorönn eru 599 talsins, flestir þeirra fjarnemar en þó með MTR sem heimaskóla. Nokkuð hefur fjölgað í hópi staðnema sem er gleðilegt. Fjarnemarnir koma flestir af höfuðborgarsvæðinu og eru ungir að árum en eru þó fjölskrúðugur hópur. Margir þeirra vinna með námi, jafnvel í fullu starfi, sumir eru að byrja aftur eftir hlé frá námi, íþróttafólk sem stundar íþrótt sína erlendis eru huti fjarnema sem og fólk sem getur ekki sótt skóla vegna andlegra eða líkamlegra veikinda. Svo er alltaf hópur fjarnema sem á annan heimaskóla en sækir staka áfanga hjá okkur sem eru ekki í boði í þeirra skóla. En þó aðstæður og bakgrunnur sé mismunandi þá stefna allir að sama marki; að sækja sér menntun til að bæta framtíðarhorfur sínar og lífsgæði.
Framhaldslíf sýningar Bergþórs
Frá því í haust hafa nokkur verk eftir Bergþór Morthens, myndlistarmann og kennara skólans, verið á sýningu í Listasafninu á Akureyri og vakið töluverða athygli. Sú sýning er nú yfirstaðin en fær framhaldslíf hjá okkur í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Verkunum hefur verið haganlega fyrir komið í sal skólans og er öllum velkomið að kíkja við á opnunartíma til að sjá og upplifa þau sem og fleiri verk í eigu skólans eftir Bergþór. Opið er mánudaga til fimmtudaga frá 8 -16 og 8 -12 á föstudögum.
Um verkin á sýningunni á Listasafninu á Akureyri sagði í sýningarskrá:
Í verkum Bergþórs eru mörkin á milli málverks og skúlptúrs óljós, en efnin þau sömu, rétt eins og litirnir og meðferð þeirra. Myndheimurinn er lifandi og verkin flökta á milli myndrænnar túlkunar og hins óhlutlæga. Skilin á milli innra og ytra yfirborðs og þess sem liggur undir verða óljós, í gróteskum og brengluðum formum sem hylja, en afhjúpa á sama tíma. Óhóf og ofhlæði, þar sem ferlið við verkin endurspeglar öfgakennda efnishyggju samfélagsins: uppbygging og niðurrif, sköpun og eyðilegging. Verkin vísa í sögu, samtíma, dægurmenningu, listasögu, pólitík, hið undarlega og hið gróteska.
Bergþór Morthens (f. 1979) lauk námi við Myndlistaskólann á Akureyri 2004 og meistaranámi í myndlist við Valand háskólann í Gautaborg 2015. Verk hans hafa verið sýnd á Íslandi, í Svíþjóð, Danmörku, Grikklandi og Rúmeníu.
Sjö nýir áfangar á vorönn
Maður er manns gaman
Stjórn nemendafélagsins Trölla hefur haldið uppi öflugu félagslífi það sem af er vetri. Fyrsta verkefnið var nýnemadagurinn, þar sem nýir nemendur skólans voru boðnir velkomnir, haldin hafa verið spilakvöld, bíókvöld og lan-kvöld að ógleymdum þemadögunum þar sem nemendur og kennara koma klæddir í takti við áskoranir nemendaráðs. Stjórn nemendaráðsins brá sér einnig til Kaupmannahafnar þar sem stjórnarmeðlimir tóku þátt í verkefninu Nemendalýðræði og félagsleg sjálfbærni með nemendaráðum tveggja danskra skóla. Var það verkefni styrkt af Erasmus+ áætluninni. Lokahnykkurinn á félagsstarfinu á haustönn var hið árlega jólakvöld þar sem nemendur og starfsfólk mættu í sínu fínasta pússi til veglegrar matarveislu og skemmtidagskrár í sal skólans. Nemendaráð sá um allan undirbúning og hafði veg og vanda af þeirri skemmtun.
Nemendaráð fundar vikulega og er þegar farið að leggja drög að skemmtilegum viðburðum á vorönninni. Ekki má svo gleyma því að nemendaráð fundar reglulega með skólameistara og kemur þar á framfæri hugmyndum nemenda til að bæta skólastarfið og á fulltrúa bæði í skólaráði og skólanefnd svo tryggt sé að sjónarmið nemenda nái eyrum þeirra sem stýra skútunni.
Ný önn - Ný ævintýri
Í gær, 5. janúar, var fyrsti kennsludagur vorannar og allir nemendur nær og fjær hófu nám. Skólinn og kennslukerfi hans hafa nú aftur fyllst af lífi og nemendur sem kennarar mættir ferskir til leiks eftir verðskuldað frí. Ný ævintýri fyrir höndum og fyrstu verkefnaskil næsta sunnudag.
Í Innu sjá nemendur þá áfanga sem þeir eru skráðir í á önninni og allir nemendur eiga að hafa fengið upplýsingar frá kennurum í tölvupósti hvernig þeir skrá sig í áfanga sína í kennslukerfinu Moodle. Fjarnemar geta haft samband við Birgittu umsjónarkennara, ef eitthvað er óljóst.
Hlökkum til að starfa með ykkur, það er svo gaman.
Rúmlega 700 nemendur útskrifaðir frá upphafi
Þann 20. desember brautskráðist 31 nemandi frá Menntaskólanum á Tröllaskaga við hátíðlega athöfn. Hafa nú alls 709 nemendur brautskráðst frá skólanum frá því hann var stofnaður árið 2010. Útskriftarnemarnir að þessu sinni koma frá tólf stöðum á landinu, flestir af höfuðborgarsvæðinu og aðeins einn staðnemi var í hópnum. Sex nemanna sáu sér fært að vera við athöfnina en líkt og undanfarin ár var hún einnig send út á fésbókarsíðu skólans svo allir útskriftarnemar og fjölskyldur þeirra gætu notið stundarinnar.
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðstoðarskólameistari stýrði athöfninni og sagði frá starfinu á önninni. Í máli hennar kom m.a. fram að tæplega 560 nemendur stunduðu nám við skólann í haust, flestir á kjörnámsbraut og starfsmenn við skólann voru 29. Mikill meirihluti nemenda eru fjarnemar sem búsettir eru vítt og breitt um landið og þó nokkrir erlendis. Líkt og undanfarin ár voru mörg erlend verkefni í gangi. Erasmus- og Nordplus-styrkir væru fastur liður í skólastarfinu sem gerðu nemendum og kennurum kleift að fara í námsferðir og einnig að taka á móti nemendahópum erlendis frá. Á önninni fór hópur nemenda til að mynda til Eistlands og nemendaráð skólans heimsótti nemendaráð tveggja framhaldsskóla í Kaupmannahöfn. Áframhald verði á slíkum samstarfsverkefnum því þau séu sérstaklega lærdómsrík. Einnig sagði Jóna Vilhelmína frá því að MTR væri UNESCO-skóli og lögð væri áhersla á að flétta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna inn í allt starf hans. Helstu áhersluatriði til þessa væru mannréttindi, umhverfismál og friður. Árangur af þessu starfi skilaði sér nú á haustdögum í Evrópsku nýsköpunarverðlaununum í kennslu sem skólinn hlaut fyrir verkefnið „Heimsmarkmiðin í öllu skólastarfi - lýðræðislegt samfélag í framkvæmd“. Verðlaunin voru afhent í Brussel í byrjun desember.
Lára Stefánsdóttir skólameistari lagði í ávarpi sínu áherslu á traust og mikilvægi þess fyrir alla aðila hvort sem er í fjölskyldum, skólum, vinnustöðum, stjórnkerfinu eða hvar annars staðar sem er. Með trausti milli aðila er svo mikið auðveldara að leysa þau mál sem upp koma og þó fólk sé ekki sammála um leiðir þá er hægt koma sér saman um lausn sem allir geta verið sáttir við ef traust ríkir milli aðila. Hún hafi oft upplifað þetta hjá kennurum skólans. Ástæðan fyrir því að hún vildi tala um traust í þessu ávarpi væri sú að einn kennari skólans, hún Ida Semey, sem hefur verið drifkrafturinn í erlendum verkefnum skólans, hefur nefnt það oftar en einu sinni að ein ástæðan fyrir góðu gengi hans er að hér ríki traust. Traustið sé þó ekki sjálfsagt, bætti Lára við, og það hafi verið heilmikil vinna í upphafi að koma skólanum á fót, vinna honum traust og sýna fram á að hægt væri að treysta því að námið í skólanum væri góður grunnur undir frekara nám og gagnaðist vel í lífi og starfi. Þetta hefur tekist og vinsældir skólans aldrei meiri en nú. Þökk sé góðu skipulagi, öflugri símenntun starfsfólks og ekki síst því trausti sem ríkir. Nemendur finna fyrir trausti frá kennurum og kennarar og starfsfólk frá skólameistara og öðrum stjórnendum. Og nemendur mæla með skólanum á ólíklegustu stöðum eins og t.d. á Beauty tips og bland.is !
Streymi á útskrift