Menntaskólinn á Tröllaskaga

Menntaskólinn á Tröllaskaga tók til starfa haustið 2010 en veturinn áður höfðu verið fjarnámssetur í Siglufirði og Ólafsfirði. Ákveðið var að nýta

Um skólann

Menntaskólinn á Tröllaskaga tók til starfa haustið 2010 en veturinn áður höfðu verið fjarnámssetur í Siglufirði og Ólafsfirði. Ákveðið var að nýta skólabyggingu í Ólafsfirði sem áður hýsti hluta grunnskólans og gekk undir nafninu Gagnfræðaskólahúsið. Húsnæðinu var breytt töluvert til að það henti menntaskóla og því námi sem skólinn býður upp á fyrir nemendur. 

Lögð er áhersla á nemendur séu virkir og sjálfstæðir í námi sínu og velji sér námsleiðir sem nýtast framtíðaráformum og áhugasviðum sínum. Notað verður leiðsagnarmat þar sem viðfangsefni nemenda eru metin jafnt og þétt alla námsönnina og nemendur geri sér sem besta grein fyrir stöðu sinni sjálfir og geti brugðist við en eigi ekki allt sitt undir einu lokaprófi eða einstaka verkefnum og prófi. Kennsluaðferðir eru verkefnamiðaðar en allar upplýsingar um námið og verkefni verða aðgengilegar í kennslukerfi skólans. 

Auk þess leggur skólinn áherslu á samskipti við sitt nánasta umhverfi með virku samstarfi.
Frumkvæði SköpunÁræði

Svæði

Framsetning efnis