Flýtilyklar
Skólinn
Menntaskólinn á Tröllaskaga er dreifnámsskóli í Ólafsfirði sem mun hefja starf haustið 2010.
Skólinn mun starfa eftir nýjum lögum um framhaldsskóla sem gefur aukið svigrúm í námsvali til stúdentsprófs og
framhaldsskólaprófs. Skólinn býður upp á metnaðarfullt nám með fjölbreyttum kennsluháttum sem miða að virkni nemenda og
sjálfstæði.
Miðað er við að nemandinn ljúki námi í skólanum á samfelldum vinnudegi þar sem námið skiptist í nám undir verkstjórn kennara, sjálfstætt nám með aðgengi að námsaðstoð eða fjarnám.
Stefnt er að því að allt námsefni utan kennslubóka sé í kennslukerfi skólans ásamt verkefnum og öðrum upplýsingum. Á sama hátt er stefnt að því að öll skilaverkefni sem það á við verði skilað í sama kennslukerfi.
Einkunnarorð skólans eru: Frumkvæði - Sköpun - Áræði
Í nýjum skóla er mikilvægt að starfsmenn og nemendur hafi frumkvæði til að efla skólann og skapa honum sess. Sköpun er grunnþáttur enda lögð áhersla á listir og menningu í skólastarfinu. Sköpun einskorðast þó ekki við slíka þætti heldur hvatt til þess að skapandi hugsun sé leiðarljós í öllu námi. Áræði er nauðsynlegt til að hafa þor til að feta nýjar slóðir sem Menntaskólinn á Tröllaskaga byrjar að troða í haust.





