Flýtilyklar
Skólasóknarreglur
- Nemendur skulu stunda námið af kostgæfni og skila verkefnum á réttum tíma.
- Nemendum í reglulegu námi ber að mæta í allar fastar kennslustundir samkvæmt stundatöflu og verkefnatíma samkvæmt reglum, þ.e. nemendur í fullu námi eiga að mæta í 12 verkefnatíma á viku að lágmarki. Fylgst verður vel með ástundun nemenda (mætingu og verkefnaskilum) og þeir krafðir skýringa á lélegri ástundun.
- Kennarar skrá viðveru nemenda í fastar kennslustundir og verkefnatíma.
- Séu nemendur fjarverandi úr skóla gilda ákveðnar reglur um hvernig taka skal á slíkum fjarvistum eftir því hver ástæða fjarvistanna er. Geti nemandi ekki sótt skóla vegna veikinda eða af öðrum ástæðum skal tilkynna forföllin daglega á skrifstofu skólans. Nauðsynlegt er að foreldrar eða forráðamenn tilkynni veikindi nemenda yngri en 18 ára. Læknisvottorði skal skila inn til skrifstofu ef veikindi vara lengur en tvo daga.
- Sé ástundun nemenda ábótavant ræðir kennari við nemandann, reynir að fá hann til að bæta sig og skráir stöðuna jafnframt í athugasemdir í Innu. Batni ástundun nemandans ekki ræðir umsjónarkennari við nemandann og foreldra hans ef hann er yngri en 18 ára og reynir að grafast fyrir um það hvers vegna hann stundar ekki námið eins og til er ætlast. Brjóti nemandi skólasóknarreglur ítrekað með slæmri ástundun getur hann átt á hættu að vera vísað úr skóla. Eftirfarandi ferli fer í gang við ítrekuð brot á skólasóknarreglum:
-
- Nemandi, og forráðamenn hans ef hann er yngri en 18 ára, fær skriflega áminningu og er boðaður á fund skólastjórnenda.
- Á fundinum er farið yfir stöðu nemandans og reynt að grafast fyrir um ástæður slæmrar ástundunar og hvort hægt er að veita nemandanum aukna aðstoð eða stuðning í náminu.
- Framhaldið er rætt og nemandanum gerð grein fyrir því að ef hann bætir ástundun sína á viðkomandi önn sé ekki fleiri aðgerða þörf. Verði ástundunin áfram slæm til enda annarinnar er nemandinn tekinn inn á skilyrðum á næstu önn og gert við hann skriflegt samkomulag um betri ástundun - bæði mætingar og verkefnaskil.
- Brjóti nemandinn samkomulagið verður honum ekki boðin áframhaldandi skólavist á næstu önn.
- Ef nemendur eru ósáttir við meðferð sinna mála geta þeir vísað málinu til skólaráðs og sótt skólann þar til niðurstaða skólaráðs er fengin.
- Skólaráð getur í sérstökum tilvikum veitt undanþágu frá reglum þessum.
(Útg. 14.07.2010)
Frumkvæði SköpunÁræði





