Flýtilyklar
Skólanefnd
Skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga skipa:
| Aðalmenn | Varamenn |
| Aðalsteinn Arnarsson (mrn) | Guðrún Unnsteinsdóttir (mrn) |
| Anna Sigríður Hjaltadóttir (mrn) | Halldóra María Elíasdóttir (mrn) |
| Jónína Magnúsdóttir (hey) | Hildur Ösp Gylfadóttir (mrn) |
| Helgi Jóhannsson (mrn), formaður | Kristján Hauksson (hey) |
| Sigurður Valur Ásbjarnarson (hey) | Sórún Júlíusdóttir (hey) |
Áheyrnarfulltrúar:
Fulltrúi kennara - Bergþór Morthens
Fulltrúi nemenda - ekki skipað
Fulltrúi foreldra - ekki skipað
Framkvæmdastjóri skólanefndar er Lára Stefánsdóttir skólameistari.
Verksvið skólanefndar fer eftir lögum um framhaldsskóla 2008 nr. 92 sem er eftirfarandi:
5.
gr. Skólanefndir.
Ráðherra skipar skólanefnd við framhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Í skólanefnd skulu sitja fimm
einstaklingar. Tveir eru skipaðir samkvæmt tilnefningum sveitarstjórna og þrír án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Nefndin
kýs sér formann til eins árs í senn. Áheyrnarfulltrúar eru þrír með málfrelsi og tillögurétt, einn tilnefndur af
kennarafundi, einn af nemendafélagi skólans og einn af foreldraráði, til eins árs í senn. Skólameistari situr fundi skólanefndar með
málfrelsi og tillögurétt. Hann er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
Hlutverk skólanefndar er að:
a. marka áherslur í starfi skólans og stuðla að sem bestri þjónustu við íbúa á starfssvæði skólans og tengslum hans við atvinnu-, félags- og menningarlíf,
b. vera skólameistara til samráðs um námsframboð skóla,
c. staðfesta skólanámskrá að fenginni umsögn almenns skólafundar og fylgjast með framkvæmd hennar,
d. veita skólameistara umsögn um árlega starfs- og fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga og fylgjast með framkvæmd hennar,
e. vera skólameistara til samráðs um fjárhæð þeirra gjalda sem skólameistari ákveður skv. 45. gr.,
f. vera skólameistara til samráðs um samninga sem viðkomandi skóli gerir,
g. vera skólameistara til samráðs um starfsmannamál,
h. veita ráðherra umsögn um umsækjendur um stöðu skólameistara.

(af vef Alþingis 14. júlí 2010, flettið upp á vef til að tryggja nýjustu útgáfu).
Frumkvæði SköpunÁræði